Stórfyrirtækið Monsanto sigrar yfirleitt örugglega þegar valin eru verstu fyrirtæki í Bandaríkjunum. Í augum margra er Monsanto holdgervingur hins illa auðhrings. Víða þar sem maður fer í Bandaríkjunum er fólk að mótmæla og dreifa bæklingum vegna Monsanto.
Monsanto er gamalt efnafyrirtæki sem færði sig yfir í framleiðslu á erfðabreyttu sáðkorni og útsæði. Aðferð fyrirtækisins, sem hefur vaxið stórkostlega hin síðari ár, er að fá höfundarétt á sáðkorni – og ná þannig tangarhaldi á landbúnaðarframleiðslu, ekki bara í Bandaríkjunum heldur út um allan heim.
Fyrirtækið hefur fært sig yfir á fleiri svið landbúnaðar og markaðssetur til dæmis vaxtahormón sem á að auka mjólkurframleiðslu í kúm.
Það er ýmislegt hægt að lesa um Monsanto á vefnum, hér eru tvær greinar:
http://www.walletpop.com/2010/02/04/monsanto-the-evil-corporation-in-your-refrigerator/
http://www.truthistreason.net/vanity-fair-covers-monsantos-evil-deeds-in-6-page-report