fbpx
Miðvikudagur 10.september 2025
Eyjan

Harpa þarf að verða samkomuhús Reykvíkinga

Egill Helgason
Þriðjudaginn 17. maí 2011 08:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þröstur Helgason segir að menning sé ekki hús. Það er rétt, að sumu leyti. Það þarf að vera til list til að setja í menningarhúsin.

Bókmenntir þrífast ágætlega án stórra húsa – en þó ekki bókasafna eða bókabúða.

En tónlist þarf hús og leiklist og ópera – já, og það þarf hús undir listasöfn og líka kvikmyndasýningar.

Fólk ferðast um heiminn og fer í fræg menningarhús: Royal Albert Hall í London,  Metropolitanóperuna og Moma í New York, Uffizi í Flórens, Beauborg í París, Guggenheim í Bilbao, óperuna í Osló, Lousiana í Kaupmannahöfn, og svo má lengi telja.

En það er alveg rétt hjá Þresti, umræðan um tónlistarhúsið Hörpu má ekki vera eintómt lof. Húsið er ferlega stórt, það er byggt samkvæmt útbólgnum viðmiðum útrásartímans – það hefði ekki orðið svona stórt ef bygging þess væri að hefjast núna. En húsið er orðið að veruleika, eins og það er, það er allt í lagi að skoða aðdragandann að byggingunni og kostnaðinn, en nú stendur upp á okkur að reyna að nýta það eins og hægt er.

Húsið hefur burði til að verða samkomuhús Reykvíkinga. Þarna eru margir salir sem geta nýst við ýmis tækifæri. Það verður að segjast eins og er að húsin sem við höfum eru alveg mátulega aðlaðandi.

En þá verða stjórnendur hússins líka að gæta þess að útiloka ekki fólk, til dæmis með alltof hárri leigu. Það hafa borist fréttir um að kjörin sem bjóðast tónlistarmönnum sem vilja komast í húsið séu mjög fráhrindandi. Það er óþolandi.

Í gærkvöldi hélt lúðrasveitin Svanur tónleika í Hörpu. Ég veit ekki hver aðsóknin var eða hvernig dæmið kemur út fjárhagslega. En mér finnst góð tilhugsun að lúðrasveit haldi tónleika í húsinu. Það er nákvæmlega eins og það á að vera.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði skrifar: Blásið til sóknar fyrir alla – ekki bara Range Rover, Benz og Porsche liðið heldur alla

Svarthöfði skrifar: Blásið til sóknar fyrir alla – ekki bara Range Rover, Benz og Porsche liðið heldur alla
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Popúlismi er tæki og við erum fólk

Nína Richter skrifar: Popúlismi er tæki og við erum fólk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Átök í þingflokki Sjálfstæðismanna – gefa höfuðborgarsvæðið upp á bátinn

Orðið á götunni: Átök í þingflokki Sjálfstæðismanna – gefa höfuðborgarsvæðið upp á bátinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Ekki vera það sem þú ert

Sigmundur Ernir skrifar: Ekki vera það sem þú ert
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: 3-30-300 reglan

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: 3-30-300 reglan
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vinnslustöðin lokar fiskvinnslunni Leo Seafood og segir 50 starfsmönnum upp

Vinnslustöðin lokar fiskvinnslunni Leo Seafood og segir 50 starfsmönnum upp