fbpx
Þriðjudagur 09.september 2025
Eyjan

Japanir og hvalkjötið

Egill Helgason
Miðvikudaginn 11. maí 2011 14:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðist ætla að verða eitthvað minna úr hvalveiðum í sumar en til stóð. Þetta á sér sjálfsagt margháttaðar skýringar, en eina þeirra má lesa í pistli sem ég skrifaði hér á vefinn fyrir tveimur árum. Segir þar frá viðhorfi Japana til neyslu hvalkjöts:

Ég spurði heimildarmenn mína í Japan um hvalveiðar og neyslu hvalkjöts þar í landi.

Þeir sögðu að sáralítið væri borðað af hval í landinu, ungt fólk liti ekki við því, en hvalveiðihugsjóninni væri aðallega haldið uppi af þrjósku nokkurra gamalla manna.

Mesta gæfa þeirra væri Greenpeace og Sea Shepard; meðan slík samtök berjist gegn hvalveiðum sé hægt að höfða til þjóðerniskenndar í Japan. Um leið, var mér sagt, óttast þeir mest fjármálaráðuneytið japanska sem gæti tekið upp á því að skera niður styrki til hvalveiðihugsjónarinnar.

Hvalkjötsneysla var aldrei útbreidd í Japan, nema í nokkrum strandbyggðum. Hún jókst hins vegar til muna á þrengingatímum eftir seinni heimstyrjöldina. Þá var hvalkjöt til dæmis oft á boðstólum í skólum – börnin sem uxu úr grasi eftir stríðið vöndust semsagt við að borða hval. Sú kynslóð er nú komin á eftirlaun.

Málið virðist semsagt vera að lítill markaður er fyrir hvalkjöt í Japan. Í landinu eru til miklar birgðir af hvalkjöti sem ekki selst – og eru komnar úr svokölluðum vísindaveiðum japanskra skipa. Heimildarmenn mínir segja að þap sé líklega nálægt 4000 tonnum af kjöti sem er geymt í skemmum.

Svo tek ég fram, til að fyrirbyggja misskilning, að ég er algjörlega hlynntur hvalveiðum. Eigandi Moby Dick að uppáhaldsbók, má jafnvel segja að ég sé heillaður af þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Binni í Vinnslustöðinni spinnur fantasíu

Orðið á götunni: Binni í Vinnslustöðinni spinnur fantasíu
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Ágúst Borgþór skrifar: Að anda ofan í hálsmál sakborninga

Ágúst Borgþór skrifar: Að anda ofan í hálsmál sakborninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Velkominn herra skattstjóri!

Óttar Guðmundsson skrifar: Velkominn herra skattstjóri!