fbpx
Sunnudagur 07.september 2025
Eyjan

Deilt um arfleifð snillings

Egill Helgason
Þriðjudaginn 3. maí 2011 06:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gríski rithöfundurinn Nikos Kazantskis var snillingur, það er ekki spurning að hann hafði snilligáfu.

Hann var óvenjulegur andans jöfur – skrifaði bækur sem eru samdar af miklum innblæstri, frægastar eru skáldsögur eins og Zorba, Frelsið eða dauðinn og Síðasta freisting Krists. Hann samdei einnig sína útgáfu af Odysseifskviðu, stóra bók í bundnu máli, og endurminningabók hans frá Krít sem nefnist Skýrsla til Greco, er frábær lesning um stórbrotnar persónur og mikil örlög. Hann þýddi Dante og Shakespeare á grísku.

Kazantsakis ólst upp á Krít á tímanum þegar Tyrkir réðu eyjunni. Hann sýndi snemma hæfileika til mennta. Fór í skóla á Krít og svo til Naxos. Í einum kafla Skýrslu til Greco (Greco er málarinn El Greco) er því lýst þegar faðir Nikosar, sem var stór persóna eins og títt er um Krítverja, komst næst því að hrósa honum. Þá hafði hann orðið efstur á samkeppnisprófi á Naxos. Faðirinn segir ekki annað en: Þú varðst okkur ekki til skammar.

Kazantsakis var líka heimspekingur sem fór mikið í taugarnar á grísku rétttrúnaðarkirkjunni. Á endanum var hann grafinn í óvígðri mold. Á legsteininum stendur: Ég vænti einskis. Ég óttast ekkert. Ég er frjáls.

Nú er risin  sérkennileg deila um þennan merka höfund sem lést árið 1957. Eigandi höfundarréttarins að verkum hans er Patrolokos Stavrou, málfræðingur frá Kýpur. Bak við það er skrítin saga. Eleni, sem var ekkja Kazantsakis, hitti Stavrou árið 1967. Fimmtán árum síðar ættleiddi hún hann. Þá var hún komin á áttræðisaldur, hann var 55 ára.

Þetta þykir heldur skrítið og reynt hefur verið að hnekkja þessum gerningi fyrir dómstólum en það hefur ekki gengið. Stavrou þykir hafa staðið sig heldur illa í hlutverki sínu, bækur Kazantzakis eru ekki mikið gefnar út lengur þótt þær teljist til helstu meistaraverkra ný-grískrar menningar. Þetta hefur vakið mótmæli víða um heim, meðal þeirra sem hafa undirritað mótmælaskjal til forseta Grikklands er Nóbelsverðlaunahöfundurinn Nadine Gordimer. Stavrou er persona non grata á Kazantsakis safninu á Krít – á eyjunni sem er svo nátengd verkum hans.

Stavrou hins vegar heldur því fram að hann sæti ofsóknum, rétt eins og kirkjan hafi ofsótt Kazantsakis á sínum tíma.

obj_ed9dd3c4c3ef51bfc88438bd9d1e73141f505015

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: 3-30-300 reglan

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: 3-30-300 reglan
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vinnslustöðin lokar fiskvinnslunni Leo Seafood og segir 50 starfsmönnum upp

Vinnslustöðin lokar fiskvinnslunni Leo Seafood og segir 50 starfsmönnum upp
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Umræðunni um málfrelsi komið upp á rétt plan

Orðið á götunni: Umræðunni um málfrelsi komið upp á rétt plan
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Er Ísland fimm stjörnu land?

Thomas Möller skrifar: Er Ísland fimm stjörnu land?