fbpx
Mánudagur 01.september 2025
Eyjan

Vandi vegna nýtilkomins heiðarleika

Egill Helgason
Mánudaginn 18. apríl 2011 15:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV er með forsíðufrétt um byggingaævintýri Björgólfs Thors Björgólfssonar og Róberts Wessmann á Suður-Spáni og fyrirætlanir um mútur í því sambandi.

Ég skrifaði um þetta mál í október 2009, en að baki virðist vera nokkuð furðuleg saga sem tengist því að farið var í herferð gegn spillingu sveitarstjórnarmanna á Spáni. Margir þeirra höfðu auðgast gríðarlega á því að láta múta sér vegna brasks með byggingaleyfi.

Færslan var svohljoðandi:

„Sagan af landakaupum Björgólfs Thors og Róberts Wessman í La Manga á Spáni segir að þeir hafi ekki gert ráðstafanir til að fá nóg vatn til að reka golf- og sundlaugaparadís sína.

Vatnsskortur er mikill á Suður-Spáni, ekki síst eftir að byggðir hafa verið alltof margir golfvellir – auk þess sem þar er núorðið ræktað mikið af ávöxtum og grænmeti sem þarfnast mikils vatns. Fyrir utan allar sundlaugarnar sem standa við hvert hús.

Til skamms tíma var hægt að komast framhjá þessu, til dæmis með því að múta sveitarstjórnarmönnum til að fara í kringum lög og reglu.

Svo fór stjórnin í Madrid í herferð. Stakk í steininn nokkrum fjölda af mútuþægum sveitarstjórnarmönnum, auk þess sem hún hótaði að láta rífa hús og hverfi sem höfðu verið reist í trássi við reglugerðir.

Síðan þá er reglugerðum fylgt á Costa Blanca – og erfiðara um vik fyrir spákaupmenn.

Annars má geta þess að þetta svæði hefur að talsverðu leyti byggst upp fyrir rússneskt fé. Rússneskir spekúlantar – og líka mafían – hafa dælt þarna inn peningum í byggingaframkvæmdir, meðal annars í því skyni að þvo peninga. Þetta ævintýri endaði með algjöru hruni byggingabransans á Spáni í fyrra – eftir stjórnlausa uppbyggingu um langt árabil.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sleggjudómar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sleggjudómar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Arnar Þór afhjúpar af hverju svo margir hægri menn studdu Katrínu – „Þetta var bara svona vá fyrir mér“

Arnar Þór afhjúpar af hverju svo margir hægri menn studdu Katrínu – „Þetta var bara svona vá fyrir mér“
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Allir höfðu skoðun á hálsklútnum“ segir Halla, stelpan úr Kópavogi

„Allir höfðu skoðun á hálsklútnum“ segir Halla, stelpan úr Kópavogi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ágúst Ólafur færir sig frá borginni eftir stutt stopp yfir í menntamálaráðuneyti

Ágúst Ólafur færir sig frá borginni eftir stutt stopp yfir í menntamálaráðuneyti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Upp með Njálu

Óttar Guðmundsson skrifar: Upp með Njálu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Lokuðu á okkur í fyrra en vilja núna vera með

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Lokuðu á okkur í fyrra en vilja núna vera með