fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
Eyjan

Óravegu frá því sem lagt var upp með

Egill Helgason
Fimmtudaginn 17. febrúar 2011 10:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður veltir fyrir sér eftir öll stóru orðin hvað ákæran sem var kokkuð upp á Alþingi gegn níumenningunum er óralangt frá dómsniðurstöðunni.

Þau voru beinlínis ákærð fyrir árás á Alþingi, þar var vísað í grein hegningarlaga þar sem er talað um að:

„Vekja eða stýra uppreisn í þeim tilgangi að breyta stjórnskipun ríkisins, fyrir að hafast eitthvað það að, sem miðar til þess að svipta forsetann lífi, fyrir hryðjuverk og fyrir að leitast við að aftra því, að fram fari kjör forseta, alþingiskosningar eða bæjar- eða sveitarstjórnakosningar.  Ákvæði þessi hafa það að markmiði að vernda ríkjandi stjórnskipun, eins og hún er ákveðin í stjórnarskrá og öðrum stjórnskipunarlögum, og vernda jafnframt æðstu handhafa ríkisvaldsins.  Er hámarksrefsing fyrir brot í þessum kafla laganna ákveðin ævilangt fangelsi.“

En í dómsniðurstöðunni segir að það sé:

„…engin vísbending í málinu um það að ákærðu hafi ætlað sér að aðhafast annað en að láta heyra í sér mótmæli vegna ástandsins í landinu frá þingpöllunum.  Verður með engu móti talið að fyrir þeim hafi vakað að reyna að kúga Alþingi eða að athafnir þeirra geti talist vera sú árás á þingið að sjálfræði þess hafi verið hætta búin.  Ber samkvæmt þessu að sýkna öll ákærðu af ákæru fyrir brot gegn 1. mgr. 100. gr. almennra hegningarlaga.“

Málatilbúnaðurinn er semsagt einstaklega klénn. Fimm eru sýknaðir, fjórir fá smávægilega dóma – sem margir þátttakendur í Búsáhaldabyltingunni hefðu sennilega verðskuldað miðað við þetta.

Í raun er þetta hið vandræðalegasta mál fyrir Alþingi og þingmenn sem höfðu uppi stór orð um þetta mál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Mikilvægt að styðja við verðsamkeppni – hefur áhrif á allan markaðinn

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Mikilvægt að styðja við verðsamkeppni – hefur áhrif á allan markaðinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sólveigu Önnu brugðið eftir viðtal við Heiðu borgarstjóra – „Einstaklingar sem að sækjast eftir miklum völdum verða að geta axlað mikla ábyrgð“

Sólveigu Önnu brugðið eftir viðtal við Heiðu borgarstjóra – „Einstaklingar sem að sækjast eftir miklum völdum verða að geta axlað mikla ábyrgð“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin