fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Eyjan

Jóhann Páll: Lögmaður með leiðindi

Egill Helgason
Föstudaginn 11. febrúar 2011 17:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Páll Jóhannsson, nemi í Menntaskólanum í Reykjavík, sendi þessa grein:

— — —

Lögmaður með leiðindi

Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags Íslands, skrifar reglulega greinar á vefsvæðið Pressan.is. Nýlega birtist eftir hann grein þar sem hann sló á létta strengi, talaði af yfirlætislegri kaldhæðni um ,,snillinga ársins“ og býsnaðist yfir þeirri gagnrýni sem svokölluð ,,lagahyggja“ hefur sætt. Jafnframt hneykslaðist hann á því að úrskurður Hæstaréttar um stjórnlagaþingskosningarnar væri véfengdur, en gerði hins vegar enga tilraun til að svara þeim málefnalegu athugasemdum sem við úrskurðinn hafa verið gerðar.

Það gefur auga leið að margir veltu fyrir sér hvað í ósköpunum Brynjari gengi til. Á bloggsíðum Egils Helgasonar, Jónasar Kristjánssonar og Friðriks Þórs Guðmundssonar var réttilega bent á að í greininni hefði hann ekkert lagt til málanna nema skæting og hótfyndni. Þetta virðist Brynjar hafa tekið nærri sér, því síðastliðinn miðvikudag birtist splunkuný grein eftir hann þar sem hann svarar þessum mönnum.

Brynjar segir þá láta í veðri vaka að hann sé andsnúinn gagnrýni á dómstóla. Annaðhvort hefur Brynjar misskilið athugasemdir Egils, Jónasar og Friðriks hrapallega, eða þá að hann fer hreinlega viljandi með rangt mál. Ómögulegt er að skilja texta þeirra á þann hátt sem Brynjar gerir nema meiriháttar túlkunarkúnstum sé beitt.

Hins vegar er ýmislegt í máli Brynjars sem bendir til þess að honum sé í nöp við gagnrýni á dómstóla. Eða hví ætti hann annars að svara gagnrýnisröddum á svona ómálefnalegan og yfirlætislegan hátt, ,,með hótfyndni og skætingi? Og hvers vegna kastar Brynjar því til dæmis fram að ekki sé hægt að ,,setja lögskýringar upp í þríliðu“  í stað þess að svara málefnalega hinum greinargóðu athugasemdum Reynis Axelssonar stærðfræðings við dóm Hæstaréttar? Þótt Brynjar segist sjálfur oft hafa gagnrýnt niðurstöður dómstóla, þá er honum greinilega ekki sama hvaðan gagnrýnin kemur eða að hvaða dómsmálum hún snýr.

Brynjar tönnlast á því að dómurum beri að dæma eftir lögunum. Það vita nú flestir. Þó hlýtur líka að vera mikilvægt að dómarar hafi lögin rétt eftir þegar þeir vitna í þau, en sleppi ekki úr heilli klausu eins og er til að mynda gert í úrskurði Hæstaréttar um stjórnlagaþingskosningarnar.

Ég man ekki eftir að hafa heyrt ,,snillinga ársins“ hvetja til þess að dómarar hætti að dæma eftir lögunum. Hins vegar hafa þeir og fleiri mælst til þess að lagaumhverfið sé betrumbætt svo réttarkerfið sé betur í stakk búið að taka á hvítflibbaglæpum. Það þykir ekki öllum tilhlýðilegt að menn geti keyrt heilt þjóðfélag í þrot undir verndarvæng laganna.

Í fyrri grein sinni gerði Brynjar grín að því að ákvörðun Hæstaréttar um ógildingu stjórnlagaþingskosninganna væri sett í samhengi við fjölskyldutengsl og pólitískan bakgrunn dómaranna. Í þeirri seinni víkur hann svo orðum að réttarfari alræðisríkja, þar sem ,,úrlausn ágreinings er gjarnan í boði Flokksins eða valdhafans.“ Þegar Brynjar gerir því skóna að ,,snillingar ársins“ vilji koma á slíku fyrirkomulagi getur maður vart varist hlátri. Og þegar hann fullyrðir að þeir boði ,,menningarbyltingu“ og gefur í skyn að þeir vilji knésetja sjálfstæða dómstóla, þá nær fáránleikinn hámarki.

Ljóst er að 22 af þeim 25 sem náðu kjöri til stjórnlagaþings vilja binda þjóðareign auðlinda í stjórnarskrána, kvótaeigendum til sárrar skapraunar. Brynjar sér ekkert athugavert við það að meirihluti þeirra sem dæmdu um lögmæti kosninganna hafi á ýmsum tímum mælt opinberlega gegn þjóðareign eða unnið að málum sem tengjast kvótakerfinu. Brynjari virðist jafnframt þykja ofureðlilegt að einn þeirra sé bróðir kvótadrottningar Íslands. Og ætli honum finnist ekki bara gott og blessað að allir dómarar Hæstaréttar, að aðeins einum undanskildum, séu skipaðir af einum og sama flokknum? Flokki sem hefur svo sannarlega ekki farið dult með andúð sína á stjórnlagaþinginu? Brynjar er blindur. Hann lætur dæluna ganga um réttarfar alræðisríkja, en sér ekki að flokksræðistilburðirnir eru beint fyrir framan nefið á honum.

Í upphafi greinar sinnar segir Brynjar að ,,dass af hroka“ geti verið þjóðmálaumræðunni til góðs. Ég vil hins vegar ljúka minni grein á því að hvetja Brynjar til að endurskoða hug sinn. Skætingur, hótfyndni og hroki er síst það sem þjóðmálaumræðan þarfnast.

Jóhann Páll Jóhannsson,
nemandi við Menntaskólann í Reykjavík

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“