fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Eyjan

Ekki guðsgjöf

Egill Helgason
Laugardaginn 29. janúar 2011 18:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jean Claude-Piris, fyrrverandi yfirmaður lögfræðideildar Evrópusambandsins, er hreinskilinn í viðtali við Fréttablaðið. Hann segir að Ísland sé engin guðsgjöf til Evrópusambandsins, heldur myndi með inngöngu Íslands fyrst og fremst bætast við smáþjóð sem þarf að taka tillit til.

Sumir hafa látið eins og Ísland sé einhvers konar gullland, El Dorado, sem Evrópusambandið ásælist.

Staðreyndin er samt sú að auðindirnar sem við höfum hér virðast vera nægar til að þjóðin geti lifað þokkalegu lífi, að minnsta kosti þegar vel árar,  en svosem ekki mikið meira en það.

Evrópusambandið mun  áfram fá íslenskan fisk á markaði sína hvort sem Íslendingar ganga inn eða ekki – orkan hér er ekki í slíku magni að skipti einhverjum sköpum fyrir Evrópu.

Piris talar líka um norðurslóðir, en talsvert hefur verið gert úr því að aðild Íslands gæti verið liður í sókn Evrópusambandsins þangað (um daginn birtist reyndar grein eftir andstæðing aðildar sem skammaðist yfir því að ESB vildi fara eins að með Norðurskautið og Suðurskautið – Suðurskautið er reyndar flokkað sem sameign mannkyns og meira og minna friðað svo það er kannski ekki svo slæm tilhugsun að líkt verði farið að með Norðurskautið áður en umhverfið þar verður eyðilagt).

Piris er spurður að því hvort Evrópusambandið vilji komast á norðurslóðir?

„Og gera hvað? Hvað þýðir það „að komast á norðurslóðir“? Við erum ekki hernaðarbandalag og Ísland er hvort sem er stofnfélagi í NATO. Þið finnið vonandi olíu, en við eigum ekki þær auðlindir sem eru í aðildarríkjunum, eða stjórnum siglingaleiðunum eða þess háttar. Á hverju nákvæmlega ættum við að hafa áhuga? Norðurslóðir eru kannski agnar-áhugaverðar en ekki svo mjög, ef ég á að vera heiðarlegur. Svo ná ESB-ríkin Svíþjóð og Finnland fyrir ofan norðurheimskautsbaug líka.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Valdaflokkarnir gáfu landsbyggðinni langt nef

Sigmundur Ernir skrifar: Valdaflokkarnir gáfu landsbyggðinni langt nef
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Arfleifð Egils í Borgarnesi

Óttar Guðmundsson skrifar: Arfleifð Egils í Borgarnesi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin