fbpx
Miðvikudagur 06.ágúst 2025
Fréttir

Matvælastofnun stöðvar aftur sölu hunda frá Dalsmynni

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. apríl 2018 09:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um stöðvun starfsemi Hundaræktarinnar í Dalsmynni á grundvelli laga um velferð dýra. Ástæða stöðvunar er að kröfur stofnunarinnar um varanlegar úrbætur hafa ekki verið virtar, einkum varðandi þjálfun, umönnun og umhirðu hundanna með tilliti til hreinlæti og skráningar. Viðhaldi húsnæðis var sömuleiðis ábótavant. Aðgerðir og áætlanir vegna ormameðhöndlunar hunda ásamt sýnatökum voru sömuleiðis ekki fullnægjandi.

Með ákvörðuninni er starfsemin í hundahúsum að Dalsmynni bönnuð og á það við innflutning hunda, pörun, ræktun, got og annað hundahald sem ætlað er til ræktunarinnar eða tengist starfseminni, sem og pössun og geymsla á hundum.

Óheimilt verður að nýta húsin undir hundahald nema að undangenginni úttekt stofnunarinnar þar sem viðhald og ástand húsa sem notuð hafa verið undir starfsemina er ekki viðunandi m.t.t. þrifa og sótthreinsunar, sérstaklega út frá smiti með orminum Strongyloides stercoralis.

Hundaræktuninni hefur verið veittur frestur til eins mánaðar til að ráðstafa hundum að Dalsmynni og komast þannig hjá vörslusviptingu hunda af hálfu Matvælastofnunar.

Matvælastofnun hefur áður haft afskipti af starfseminni og um endurtekin brot er að ræða. Dreifingarbanni MAST árið 2014 var aflétt þegar kröfum stofnunarinnar um úrbætur hafði verið sinnt og gripið hafði verið til nauðsynlegra aðgerða til halda niðri smiti af völdum þráðorma og annarra iðrasýkinga sem greinst hafa þar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Íris tók námslán árið 2011 sem hún er ekki byrjuð að borga – „Og hvar stendur það núna ef þið hélduð að BA-gráðu lánið mitt væri martröð?“

Íris tók námslán árið 2011 sem hún er ekki byrjuð að borga – „Og hvar stendur það núna ef þið hélduð að BA-gráðu lánið mitt væri martröð?“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Þorvaldur segir líkur á öðru gosi: „Það væri þá í kringum jólin eða eitthvað svoleiðis“

Þorvaldur segir líkur á öðru gosi: „Það væri þá í kringum jólin eða eitthvað svoleiðis“