fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
433

Pep Guardiola: Skiptir ekki máli hvar við vinnum deildina

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 12. mars 2018 22:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stoke tók á móti Manchester City í mánudagsleik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld en leiknum lauk með 2-0 sigri gestanna.

Það var David Silva sem skoraði bæði mörk City í dag og hefur liðið nú 16 stiga forskot á Manchester United á toppi deildarinnar.

Pep Guardiola, stjóri City viðurkenndi það eftir leik að hans menn væru ansi nálægt því að tryggja sér sigur í ensku úrvalsdeildinni.

„Við erum nálægt þessu, við erum komnir með 81 stig sem er slatti. Frammistaðan í kvöld var mjög góð og þeir fengu ekki eitt færi í leiknum,“ sagði Guardiola.

„Við vorum mjög öruggir í dag. David Silva stjórnaði leiknum, hann er gríðarlega hæfileikaríkur og stýrir hraða leiksins en þegar reynir á er hann alltaf til staðar.“

„Það er alltaf flókin staða að vera meistari. Þetta félag hefur ekki unnið marga titla í fortíðinni og við þurfum að læra það hægt og rólega. Það skiptir ekki máli hvar við vinnum titilinn, það er ekki eitthvað sem við erum að hugsa um.“

„Ég veit að stuðningsmennirnir vilja vinna hann gegn Manchester United en við erum bara að hugsa um næsta leik gegn Everton. Núna förum við í smá frí og njótum þess að æfa í sólinni,“ sagði hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Rosenior hefur fundið út úr því hver er að leka byrjunarliði Chelsea

Rosenior hefur fundið út úr því hver er að leka byrjunarliði Chelsea
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum
Hafna tilraunum Börsunga
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu
433Sport
Í gær

Fundin sek um að greiða undir lágmarkslaunum

Fundin sek um að greiða undir lágmarkslaunum
433Sport
Í gær

Tyrkirnir hóta því að fara í mál við Liverpool – Náðist að bjarga þumlinum

Tyrkirnir hóta því að fara í mál við Liverpool – Náðist að bjarga þumlinum
433Sport
Í gær

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi
433Sport
Í gær

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik