fbpx
Sunnudagur 21.september 2025
433

Myndband: Sturluð varsla De Gea – Höddi Magg missti sig

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 5. mars 2018 22:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United náði í stign þrjú þegar liðið heimsótti Crystal Palace heim í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

United byrjaði leikinn illa og var fyrri hálfleikurinn afar illa spilaður af liðinu. Andros Townsend kom heimamönnum yfir á elleftu mínútu en skot hans fór í Victor Lindelof og í netið. Síðari hálfleikur var svo ekki gamall þegar Patrick Van Aanholt kom Palace í 2-0. Liðið tók aukaspyrnu fljótt á miðum vellinum og hollenski bakvörðurinn var sendur einn í gegn á meðan Chris Smalling var sofandi. Van Aanholt skoraði svo á nærstöngina á David De Gea.

Á 55 mínútu lagaði Smalling stöðuna fyrir United þegar hann lúrði á teignum og kom boltanum í netið af stuttu færi.Það var svo á 76 mínútu sem Romelu Lukaku jafnaði leikinn en hann fékk boltann á teignum eftir gott skot Alexis Sanchez. Það var svo í uppbótartíma sem Nemanja Matic tryggði United sigurinn með geggjuðu skoti fyrir utan teig og tryggði United stigin þrjú.

Í stöðunni 2-2 varði David De Gea meistaralega en Hörður Magnússon var að lýsa leiknum og missti sig yfir vörslunni.

Smelltu hér til að sjá vörsluna og Hödda Magg í stuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Fékk ekki að fara en fær launahækkun

Fékk ekki að fara en fær launahækkun
433Sport
Fyrir 2 dögum

Með því að lifa tvöföldu lífi hélt hann framhjáhaldinu gangandi í tvö ár – Þetta litla atvik varð til þess að allt kom upp á yfirborðið

Með því að lifa tvöföldu lífi hélt hann framhjáhaldinu gangandi í tvö ár – Þetta litla atvik varð til þess að allt kom upp á yfirborðið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fór að ferðast til að halda sér gangandi í sorginni – „Að vinna með fólki með heilabilun hefur líka hjálpað“

Fór að ferðast til að halda sér gangandi í sorginni – „Að vinna með fólki með heilabilun hefur líka hjálpað“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guðjón tekur við Haukum – Hætti um síðustu helgi að spila

Guðjón tekur við Haukum – Hætti um síðustu helgi að spila