Maccabi Haifa og Maccabi Tel Aviv eigast nú við í ísraelsku úrvalsdeildinni og er staðan 1-0 fyrir gestina þegar um hálftími er liðinn af leiknum.
Viðar Örn Kjartansson er á sínum stað í byrjunarliði Tel Aviv en hann hefur verið sjóðandi heitur í undanförnum leikjum.
Það tók hann einungis 10 sekúndur að koma Tel Aviv yfir í leiknum í kvöld en markið var afar glæsilegt.
Myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.
@Vidarkjartans 💛💙⚡ pic.twitter.com/C22qYKwF1o
— Or Eren (@OrEren6) January 15, 2018