fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Sport

Steve McClaren missti andlitið þegar Kolbeinn skoraði

Var nýbúinn að dásama enska liðið þegar markið kom

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 27. júní 2016 23:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steve McClaren, fyrrverandi landsliðsþjálfara Englands, var illa brugðið þegar Kolbeinn Sigþórsson kom Íslandi yfir gegn Englandi í kvöld.

McClaren, sem hefur stýrt fjölda liða á Englandi, var landsliðsþjálfari Englands um skamma hríð árin 2006 og 2007. Hann lýsti leiknum beint á Sky Sports í kvöld og var vart búinn að ljúka lofræðu sinni um enska liðið þegar Kolbeinn skoraði markið sem skildi liðin að.

Eins og sést í meðfylgjandi myndbandi dásamaði McClaren sóknarleik Englendinga og sagði að Daniel Sturridge og Kyle Walker væru að valda íslenska liðinu allskonar vandræðum með sóknum sínum upp hægri vænginn. Þá væri Raheem Sterling stórhættulegur á hinum vængnum.

Svo kom markið í andlitið á Englendingum og er óhætt að segja að McClaren hafi hreinlega misst andlitið. Sjón er sögu ríkari en myndbandið má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Manchester United reynir aftur við franska landsliðsmanninn

Manchester United reynir aftur við franska landsliðsmanninn
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Lýsingar á meintu broti Kolbeins í ákæru – Málið var tekið fyrir í gær

Lýsingar á meintu broti Kolbeins í ákæru – Málið var tekið fyrir í gær
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fyrrum markvörður Arsenal á leið til Chelsea?

Fyrrum markvörður Arsenal á leið til Chelsea?
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Stórtíðindi frá Þýskalandi – Kveður í sumar

Stórtíðindi frá Þýskalandi – Kveður í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Besta FH-lið sögunnar opinerað á morgun

Besta FH-lið sögunnar opinerað á morgun
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rashford boðaður á krísufund hjá Manchester United

Rashford boðaður á krísufund hjá Manchester United
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sagði leikmaður Chelsea þetta við dómarann í gær? – Myndband

Sagði leikmaður Chelsea þetta við dómarann í gær? – Myndband
433Sport
Í gær

Höddi Magg opnar sig um brottreksturinn – „Svo var mönnum bara drullusama um það“

Höddi Magg opnar sig um brottreksturinn – „Svo var mönnum bara drullusama um það“
433Sport
Í gær

Sjáðu hjartnæmt myndband – Klopp táraðist er unga listakonan afhenti honum málverkið

Sjáðu hjartnæmt myndband – Klopp táraðist er unga listakonan afhenti honum málverkið