fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
Pressan

Mætti á sjúkrahúsið í örvæntingu til að stöðva æskuvinkonu sína – Myndband

Pressan
Föstudaginn 27. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Æskuvinkona hinnar 25 ára gömlu Noeliu Castillo, sem fékk dánaraðstoð í Barcelona í gær, reyndi á síðustu stundu að fá hana til að hætta við ákvörðunina.

Henni var hins vegar meinaður aðgangur að sjúkrastofu Noeliu og náði því ekki að hitta vinkonu sína áður en lífslokaaðgerðin fór fram.

Fjallað var um málið í gær og vakti umfjöllunin mikla athygli.

Sjá einnig: 25 ára þolandi hópnauðgunar hafði betur gegn föður sínum og fær dánaraðstoð í dag – „Nú skulum við sjá hvort ég fái loksins að hvíla í friði“

Castillo varði stórum hluta æsku sinnar í fóstri vegna fíknar og andlegra veikinda foreldra sinna. Hún segist svo endanlega hafa fengið nóg af lífinu árið 2022 eftir að henni var nauðgað í tvígang, fyrst af fyrrverandi kærasta og síðan hópnauðgað af þremur ókunnugum karlmönnum á næturklúbbi.

Nokkrum dögum eftir síðari nauðgunina reyndi hún að svipta sig lífi með því að kasta sér fram af fimmtu hæð fjölbýlishúss. Hún hlaut mænuskaða við fallið, lamaðist fyrir neðan mitti og glímdi í kjölfarið við sársaukafulla taugaverki. Faðir hennar reyndi að koma í veg fyrir að hún fengi dánaraðstoð en laut í lægra haldi fyrir spænskum dómstólum.

Í frétt spænska miðilsins Okidario, sem New York Post vitnar til, mætti Carla Rodriguez, æskuvinkona Castillo, á sjúkrahúsið um klukkustund áður en dánaraðstoðin fór fram.

Hún segir að hún hafi fyrst frétt af ákvörðuninni í gegnum fjölmiðla og hafi þá tafarlaust farið á staðinn í von um að fá að tala við hana.

„Ég vildi reyna að fá hana til að skipta um skoðun,“ sagði Rodriguez, sem var á staðnum með sex ára dóttur sinni. Samkvæmt heimildum var henni þó synjað um aðgang að herberginu af öryggisvörðum sjúkrahússins.

Í viðtali sem birtist daginn áður en aðgerðin fór fram sagði Castillo að hún væri orðin örmagna af langvarandi sársauka og lífsgæðum sem hún taldi óviðunandi.

„Ég vil hætta að þjást,“ sagði hún og lýsti meðal annars miklum verkjum, svefnleysi og áhugaleysi á daglegu lífi. Noelia lést í Barcelona síðdegis í gær.

__________

Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Teslueigandi skælbrosandi á handtökumynd – Ók ölvuð inn í þvögu af fólki

Teslueigandi skælbrosandi á handtökumynd – Ók ölvuð inn í þvögu af fólki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingar eru hreinskilnir – Svona lengi eiga samfarir að vara að meðaltali

Sérfræðingar eru hreinskilnir – Svona lengi eiga samfarir að vara að meðaltali
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingur segir þessar reglur afgerandi fyrir gott hjónaband

Sérfræðingur segir þessar reglur afgerandi fyrir gott hjónaband
Pressan
Fyrir 4 dögum

Börn sem læra þetta snemma á lífsleiðinni ná góðum árangri í lífinu

Börn sem læra þetta snemma á lífsleiðinni ná góðum árangri í lífinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sagt að hún væri geðveik þegar hún viðraði áhyggjur af undarlegum hljóðum á heimilinu – Síðan kom sannleikurinn í ljós

Sagt að hún væri geðveik þegar hún viðraði áhyggjur af undarlegum hljóðum á heimilinu – Síðan kom sannleikurinn í ljós