fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
Fréttir

Færist aftur fjör í leikinn á laugardagskvöld

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. mars 2026 07:33

Svona lítur vindaspáin út klukkan 20 á laugardagskvöld. Mynd/Veðurstofa Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lægðin sem gerði landsmönnum lífið leitt í gærmorgun heldur áfram að angra okkur í dag þegar hún ferðast suður með landinu á norðausturleið og veldur hvassviðri eða stormi um vestanvert landið.

Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands en hvassast verður á Vestfjörðum.

„Snjókoma eða él fylgir þessu veðri, og bætir talsvert í ofankomu með kvöldinu,“ segir í hugleiðingum en síðdegis fer að hvessa um austanvert landið og verður orðið verulega hvasst suðaustanlands í kvöld og nótt. Þá er útlit fyrir rok eða ofsaveður og snjókomu austan Öræfa en samtímis lægir vestantil.

„Um hádegi á laugardag verður lægðin loks búin að fjarlægjast okkur og dregur þá úr vindi um landið austanvert og útlit fyrir bjartviðri í flestum landshlutum, en þá færist aftur fjör í leika, fyrst í suðvestri. Seint á laugardagskvöld er útlit fyrir storm eða rok víða um land og snjókomu, en slyddu eða skúrir með ströndinni sunnan- og vestantil. Staðbundið gæti verið um ofsaveður að ræða með hviðum yfir 40-45 m/s. Vindur verður þó hægari um landið norðaustanvert fram eftir kvöldi og yfirleitt þurrt.“

Að sögn veðurfræðings verður fremur rólegt veður á á pálmasunnudag með éljum, slydduéljum eða skúrum, en hvassviðri verður nyrst á landinu með snjókomu. Úrkomuminna verður sunnan jökla.

„Síðan tekur að hvessa suðaustan- og austantil með deginum. Hiti verður um og undir frostmarki með ströndinni norðanverðri, en að 6 stigum um landið sunnanvert að deginum. Þó stutt sé í hlýja vorloftið suður af landinu, þá mun kalda loftið halda áfram að minna reglulega á sig, að minnsta kosti vel inn í næstu viku.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ósáttur við að þurfa að borga kílómetragjaldið þótt bíllinn sé í útlöndum

Ósáttur við að þurfa að borga kílómetragjaldið þótt bíllinn sé í útlöndum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Halda því til streitu að Samhjálp fari á Grensásveg – „Í okkar samfélagi geta komið upp erfið atvik“

Halda því til streitu að Samhjálp fari á Grensásveg – „Í okkar samfélagi geta komið upp erfið atvik“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum
Stúlkan er fundin
Fréttir
Í gær

Ágreiningur á milli Trumps og Netanjahú – „Hvers vegna í fjáranum ættum við að gera það?“

Ágreiningur á milli Trumps og Netanjahú – „Hvers vegna í fjáranum ættum við að gera það?“
Fréttir
Í gær

Karlmaður á áttræðisaldri sviptur fjárræði – Ítrekað orðið svikahröppum að bráð og millifært milljónir

Karlmaður á áttræðisaldri sviptur fjárræði – Ítrekað orðið svikahröppum að bráð og millifært milljónir