fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Ólafur F. tekur skýra afstöðu fyrir borgarstjórnarkosningar – Segir einn flokk skera sig úr

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. mars 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, segir að breytinga sé þörf á stjórn borgarinnar. Hann tekur skýra afstöðu í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag þar sem hann ræðir meðal annars skipulagsmál, samgöngustefnu og framtíð Reykjavíkurflugvallar.

„Þó að Samfylkingin sé höfuðsmiður skipulagsóreiðunnar og flugvallarandstöðunnar í Reykjavík hafa allir aðrir flokkar í borginni, nema Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur, komið að stjórn borgarinnar á undanförnum árum. Þetta þarf að breytast,“ segir Ólafur í grein sinni.

Hann segir að „öfgakennd“ hugmyndafræði um þéttingu byggðar með tilheyrandi skipulagsóhöppum og óform um rándýra og íþyngjandi borgarlínu hafi verið borgarbúum þung í skauti.

„Það birtist m.a. í byggingu dýrs og óhentugs húsnæðis með skipulögðum bílastæðaskorti, ásamt því að tefja fyrir umferð um borgina til að reyna að knýja fram breyttan ferðamáta. Áformin um nýja byggð í Keldnalandi og í Skerjafirði litast líka af þessari þröngsýni og ábyrgðarleysi gagnvart almanna- og öryggishagsmunum.“

Ólafur segir að þessi hugmyndafræði birtist líka í „fráleitum“ hugmyndum um byggð í Vatnsmýri, sem grundvallast meðal annars á tillögu skoskra arkitekta þar sem gert er ráð fyrir að Reykjavíkurflugvöllur víki fyrir byggð.

„Þetta mál þekki ég vel, enda var ég eini kjörni aðalborgarfulltrúinn í Reykjavík á árunum 2006-2010 sem barðist gegn þessari ótrúlegu tillögu, ekki síst í borgarstjóratíð minni, árið 2008. Þetta var staðan í borgarstjórn Reykjavíkur á sama tíma og meirihluti borgarbúa og hvað þá annarra landsmanna vildi hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni.“

Ólafur rifjar upp að lítið hafi farið fyrir stuðningi við flugvöllinn í Vatnsmýri eftir að hann hætti í borgarstjórn árið 2010, þar til flugvallarvinir buðu fram með Framsóknarflokknum árið 2014 og fengu tvo borgarfulltrúa kjörna.

„Þá fyrst fór borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins að sjá að sér í flugvallarmálinu. Í dag er Miðflokkurinn helsti arftaki flugvallarvinaframboðsins frá árinu 2014, því að Framsóknarflokkurinn í dag er sannarlega ekki flugvallarvinur, hvorki í síðustu ríkisstjórn né borgarstjórn. Um andúð Viðreisnar á flugvellinum í Vatnsmýri þarf ekki að fjölyrða,“ segir Ólafur sem endar grein sína á þessum orðum:

„Í mínum huga sem helsta flugvallarvinarins í borgarstjórn Reykjavíkur á fyrsta áratug þessarar aldar er Miðflokkurinn besti valkosturinn í borgarstjórnarkosningunum 16. maí nk.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Tók fyrir tilviljun viðtal við mann nokkrum mínútum áður en hann varð bráðkvaddur á skiptistöðinni í Hamraborg

Tók fyrir tilviljun viðtal við mann nokkrum mínútum áður en hann varð bráðkvaddur á skiptistöðinni í Hamraborg
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þvottavélarnar þagna – Kjartan Örn segir ekki nóg að lækka vextina því hagkerfið geti stöðvast

Þvottavélarnar þagna – Kjartan Örn segir ekki nóg að lækka vextina því hagkerfið geti stöðvast
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Tölvuþrjótar „seldu“ herbergi í gegnum tölvu Hótel Breiðavíkur á sólmyrkvanum – „Með undirskrift minni og öllu saman“

Tölvuþrjótar „seldu“ herbergi í gegnum tölvu Hótel Breiðavíkur á sólmyrkvanum – „Með undirskrift minni og öllu saman“