
Veðurfræðingar höfðu varað við miklum rigningum og höfðu opinberar viðvaranir verið gefnar út.
Í frétt Canarian Weekly segir að fimm breskir ferðamenn sem sátu fastir í umræddri smárútu hafi sloppið ómeiddir.
Myndbandsupptökur frá vettvangi sýna skelfingu ferðalanganna þegar vatnið hækkaði hratt í göngum þar sem rútan hafði drepið á sér. Bresk kona sem komst fyrst út um sóllúgu smárútunnar klifraði upp á þakið og hrópaði örvæntingarfull: „Getur einhver hjálpað okkur?“ Annar Breti heyrist þá kalla til konunnar að halda kyrru fyrir og hjálp væri á leiðinni.
Ferðamennirnir, sem óttuðust um líf sitt þegar vatnið hélt áfram að hækka, yfirgáfu smárútuna einn af öðrum í gegnum sóllúguna. Þrír ferðamenn komust á þurrt að sjálfsdáðum en tvær konur þurftu að fá aðstoð frá viðbragðsaðilum á vettvangi. Talið er að ferðamennirnir hafi annað hvort nýkomnir til Tenerife eða á leið út á flugvöll.
Í frétt Canarian Weekly kemur fram að atvikið hafi átt sér stað um klukkan 21 að staðartíma, en um svipað leyti var send út viðvörun vegna yfirvofandi flóðahættu í farsíma íbúa á svæðinu.
Óveðrið sem olli flóðunum tengist storminum Therese, sem hefur haft víðtæk áhrif á Kanaríeyjum undanfarna daga.