fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fréttir

Vonskuveður á höfuðborgarsvæðinu á morgun – Viðvörunin orðin appelsínugul

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. mars 2026 07:40

Svona verður staðan klukkan 12 á hádegi á morgun. Mynd/Veðurstofa Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun á hluta landsins á morgun vegna suðaustan storms og stórhríðar.

Gefin var út gul viðvörun fyrir allt landið í gær en hún hefur nú verið uppfærð í appelsínugula fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa og Miðhálendið.

Á höfuðborgarsvæðinu tekur viðvörunin gildi klukkan átta í fyrramálið og gildir hún til klukkan 13 að óbreyttu. Á vef Veðurstofunnar segir:

„Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.“

Á Suðurlandi verður veðrið enn verra og má gera ráð fyrir suðaustan 20 til 28 metrum á sekúndu og gætu vindhviður farið yfir 40 metra á sekúndu. Búast má við talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð og verður ekkert ferðaveður fra klukkan 7 í fyrramálið til klukkan 13. Svipaða sögu er að segja af Faxaflóa.

Veðrið verður skaplegra í öðrum landshlutum en þó verða gular viðvaranir gildandi fram eftir degi. Á Vestfjörðum má gera ráð fyrir austan 15 til 25 metrum á sekúndu og gætu vindhviður staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu. Þar, líkt og í öðrum landshlutum, má búast við snjókomu og skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð.

Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður gul viðvörun í gildi frá klukkan 10 til 16 á morgun og má búast við snjókomu og skafrenningi og versnandi færð. Vindhviður gætu farið staðbundið yfir 35 metra á sekúndu.

Á Norðurlandi eystra gildir gul viðvörun frá klukkan 13 til 20 og á Austurlandi og Austfjörðum frá klukkan 14 til 20. Í þessum landshlutum má búast við snjókomu og skafrenningi og versnandi færð, einkum á fjallvegum. Á Suðausturlandi verður gul viðvörun í gildi frá klukkan 8 til 16.

Hægt er að kynna sér veðurspána betur á vef Veðurstofu Íslands.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Hrinan getur hæglega endað með gosi – „Augljóst að það er eitthvað að gerast“

Hrinan getur hæglega endað með gosi – „Augljóst að það er eitthvað að gerast“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Biðjast afsökunar – Foreldrar ekki látnir vita af óviðeigandi framkomu leikskólastarfsmanns gegn barni

Biðjast afsökunar – Foreldrar ekki látnir vita af óviðeigandi framkomu leikskólastarfsmanns gegn barni