fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
433Sport

Umboðsmaður Sesko ósáttur með hlutverk hans og nafnið sem er reynt að setja á hann

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 24. mars 2026 13:59

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Benjamin Sesko hefur hafnað því að skjólstæðingur hans sé kallaður „super sub“ og vill meina að framherjinn eigi skilið stærra hlutverk hjá Manchester United.

Sesko, sem gekk til liðs við United frá RB Leipzig í sumar fyrir háa upphæð, hefur skorað níu mörk á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Sjö þeirra hafa komið eftir áramót, þar sem hann hefur haft mikil áhrif undir stjórn Michael Carrick.

Slóvenski framherjinn, sem er 22 ára, hefur byrjað 13 leiki og komið inn af bekknum í 13 til viðbótar. Hann hefur nýst vel sem varamaður og skorað mikilvæg mörk, þar á meðal sigurmark gegn Fulham og Everton, jöfnunarmark á lokamínútum gegn West Ham og mark sem tryggði sigur gegn Aston Villa.

Þessi frammistaða hefur leitt til þess að hann hefur verið kallaður „super sub“, en umboðsmaður hans Elvis Basanovic er ekki hrifinn af þeirri skilgreiningu.

„Mér líkar það ekki. Ég vil frekar kalla hann ‘super striker’,“ sagði hann.

„Benjamin er heilsteyptur framherji. Hann hefur skorað jafnmörg mörk sem byrjunarliðsmaður og sem varamaður,“ bætti hann við.

Basanovic telur að Sesko eigi skilið að vera talinn lykilframherji og fá fleiri tækifæri í byrjunarliðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir áhugaverða helgi í enska boltanum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir áhugaverða helgi í enska boltanum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Furðar sig á ákvörðun Thomas Tuchel í gær – Segir þetta móðgun gagnvart Trent

Furðar sig á ákvörðun Thomas Tuchel í gær – Segir þetta móðgun gagnvart Trent
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Vill fara frítt til Barcelona í sumar

Vill fara frítt til Barcelona í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

United sagt vilja kaupa vonarstjörnu Arsenal í sumar

United sagt vilja kaupa vonarstjörnu Arsenal í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sussaði á manninn sem kallaði hann rúnkara – Myndbandið vekur athygli

Sussaði á manninn sem kallaði hann rúnkara – Myndbandið vekur athygli
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Birti krúttlega mynd um helgina – Það sem birtist á myndinni kostar 2,5 milljarð

Birti krúttlega mynd um helgina – Það sem birtist á myndinni kostar 2,5 milljarð
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segir að Arteta verði að axla ábyrgð á tapi Arsenal í gær – Skilur ekki þessa ákvörðun

Segir að Arteta verði að axla ábyrgð á tapi Arsenal í gær – Skilur ekki þessa ákvörðun
433Sport
Í gær

Gerðist í fyrsta sinn í meira en ár hjá Arsenal

Gerðist í fyrsta sinn í meira en ár hjá Arsenal
433Sport
Í gær

Leikmenn Arsenal einn af öðrum afboða sig í landsleiki

Leikmenn Arsenal einn af öðrum afboða sig í landsleiki