fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fréttir

Hrinan getur hæglega endað með gosi – „Augljóst að það er eitthvað að gerast“

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 24. mars 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er augljóst að það er eitthvað að gerast,” segir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur í samtali við DV um ákafa skjálftavirkni sem hófst á Reykjaneshrygg nærri Eldey í gær.

Margir skjálftar mældust á svæðinu í gær og voru nokkrir þeirra yfir 4,0 að stærð.

Þorvaldur segir að skjálftahrinur á svæðinu séu ekki óalgengar, en miðað við það sem gengið hefur á síðustu misseri velta margir því fyrir sér hvort eldgos sé yfirvofandi á svæðinu.

„Ég held að þetta sé hluti af stærri mynd, að þessi hluti plötuskilanna er kominn í gang – nyrsti hlutinn af Reykjaneshryggnum sem er neðansjávar og síðan upp á land. Allur Reykjanesskaginn.”

Þorvaldur segir að það kæmi honum ekki á óvart ef eldgos hæfist á svæðinu. Ómögulegt sé þó að spá fyrir um hvernig slíkt gos yrði.

„Það er alveg möguleiki á að það gerist en það er líka möguleiki á að við sjáum það gos aldrei, ef það er á nægjanlega miklu dýpi og kemur upp rólega þá getur það myndað bólstrabergshraun á botni sjávar. Það eina sem við gætum séð er að sjórinn hitnar eitthvað þarna fyrir ofan,“ segir hann.

„En svo gæti komið nógu umfangsmikið gos að það nær að byggja sig upp úr sjónum og þá fáum við öskugos og meiri læti og sjónarspil – svipað og við sáum í Surtsey á sínum tíma. Það hafa margar eyjar myndast þarna tímabundið og svo hafa þær horfið í hafið.“

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing um stöðu mála á svæðinu og hann telur að helmingslíkur séu á eldgosi í kjölfar hrinunnar í gær. Sagði hann að eðli skjálftanna væri þannig að kvika sé farin að troðast inn.

„Þessi hrina getur lognast út af en þær eru búnar að vera svolítið ákveðnar þarna og stutt á milli þeirra þannig að eitthvað er í gangi,“ sagði hann.

Það hefur mikið gengið á síðastliðinn sólarhring. Mynd/Veðurstofa Íslands.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Donald Trump færir heiminum góðar fréttir – Er lausn í sjónmáli?

Donald Trump færir heiminum góðar fréttir – Er lausn í sjónmáli?
Fréttir
Í gær

Svanur segir andstæðinga dánaraðstoðar auka á þjáningu og svipta fólk reisn – Fólk hafi svelt sig í rúmum sínum

Svanur segir andstæðinga dánaraðstoðar auka á þjáningu og svipta fólk reisn – Fólk hafi svelt sig í rúmum sínum
Fréttir
Í gær

„Ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „Já“ segir hann“

„Ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „Já“ segir hann“
Fréttir
Í gær

Tveimur þjófum vísað úr landi – Mega ekki koma aftur næstu árin

Tveimur þjófum vísað úr landi – Mega ekki koma aftur næstu árin