

Enska blaðamaðurinn Henry Winter hefur gagnrýnt val Thomas Tuchel á landsliðshóp Englands og telur ákvörðunina um að kalla Ben White aftur inn vera umdeilda.
White snýr nú aftur í enska landsliðið eftir rúmlega þriggja ára fjarveru, en hann hafði áður gefið til kynna að hann vildi ekki vera valinn. Winter segir að endurkoma hans jaðri við móðgu“ gagnvart Trent Alexander-Arnold, sem enn er skilinn eftir þrátt fyrir stöðuga frammistöðu undanfarið.
Alexander-Arnold, sem leikur nú með Real Madrid, hefur lengi verið talinn einn besti sendingarmaður heims og lykilmaður í stórleikjum. Winter bendir á að hann geti breytt leikjum með sendingum sínum og sé einnig sterkur í vítaspyrnukeppnum.
Meiðsli og brottfall annarra leikmanna hafa opnað pláss í hægri bakvarðarstöðunni, þar sem Reece James er meiddur og bæði Kyle Walker og Kieran Trippier hafa hætt með landsliðinu. Þrátt fyrir það hefur Alexander-Arnold ekki verið valinn.
White var kallaður inn í hópinn vegna meiðsla Jarell Quansah, en Winter segir að áhugavert verði að sjá viðbrögð stuðningsmanna og jafnvel Alexander-Arnold sjálfs.
Tuchel virðist ekki meta Alexander-Arnold jafn hátt og aðrir og sú staða þykir sífellt undarlegri að mati Winter.