fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
433Sport

Pétur rekinn úr Kórnum í gærkvöldi – Sakaður um ósæmilega hegðun

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. mars 2026 07:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pétur Rögnvaldsson var rekinn úr starfi hjá HK í gærkvöldi en hann þjálfaði kvennalið félagsins í knattspyrnu. Liðið leikur í næst efstu deild.

Sagt er að Pétur hafi brotið siðareglur félagsins og sökum þess sé honum sagt upp.

Samkvæmt heimildum 433.is var kvennalið HK að koma heim úr æfingaferð, þar er Pétur sakaður um að hafa hagað sér ósæmilega í garð leikmanna liðsins.

Samkvæmt sömu heimildum var haldin fundur með foreldrum leikmanna í gærkvöldi en margar þeirra eru ekki orðnar lögráða. Var málið þar lagt á borðið fyrir foreldra og spurningum svarað.

Pétur var á sínu öðru ári með lið HK en hefur nú látið af störfum og leitin að eftirmanni hans hafin.

Tilkynning HK:
Pétur Rögnvaldsson þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu og HK hafa komist að samkomulagi um starfslok í kjölfar þess að hann gerðist sekur um brot á siðareglum félagsins. Pétur hefur þegar látið af störfum og óskum við honum velfarnaðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Fyrirsætan farin frá honum – Hefur reynst þeim báðum mjög erfitt

Fyrirsætan farin frá honum – Hefur reynst þeim báðum mjög erfitt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Þorði ekki að koma út úr skápnum og sér eftir því – Félagi hans gerði það og tók eigið líf nokkrum árum síðar

Þorði ekki að koma út úr skápnum og sér eftir því – Félagi hans gerði það og tók eigið líf nokkrum árum síðar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ekkja Diogo Jota heiðraði minningu hans með fallegum hætti – Fyrsti feðradagurinn án hans

Ekkja Diogo Jota heiðraði minningu hans með fallegum hætti – Fyrsti feðradagurinn án hans
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Samfélagsmiðlastjarnan rak stjórann strax úr starfi – Ræður Andy Carroll inn í staðinn

Samfélagsmiðlastjarnan rak stjórann strax úr starfi – Ræður Andy Carroll inn í staðinn
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Úrslitaleikur Þungavigtarbikarins í Garðabæ í kvöld

Úrslitaleikur Þungavigtarbikarins í Garðabæ í kvöld
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ferli Schmeichel gæti verið lokið – Faðir hans vonar að þessu ljúki ekki svona

Ferli Schmeichel gæti verið lokið – Faðir hans vonar að þessu ljúki ekki svona