fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Höskuldur lýsir því hvernig Ólafur kom inn í hlutina í Kópavogi – „Það þarf ekki að kollvarpa öllu“

433
Mánudaginn 16. mars 2026 08:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Ólafur Ingi Skúlason tók við sem þjálfari Blika undir lok síðasta tímabils og leikmennirnir tala afar vel um hann,

„Hann kom bara inn af ákveðinni auðmýkt og virðingu fyrir því starfi sem hafði verið unnið áður. Narratívið í hans orði og verkum var að hann væri að taka við mjög góðu búi og hér hafi hlutirnir verið gerðir mjög vel, náðst árangur og ákveðinn kúltúr og hefð.

Það þarf ekki að kollvarpa öllu eða tala eins og hlutir væru komnir á vondan stað, þvert á móti, bara gera enn betur og svo innleiða sitt. Ég hef bara gott um Óla að segja,“ sagði Höskuldur og Ívar, sem er nýkominn til Breiðabliks frá KA, tók undir.

„Hann er mjög viðkunnanlegur. Það er hægt að tala við hann á mannamáli og hann er mjög lausnamiðaður. Á fyrstu fundunum hefur hann verið að fara yfir sínar áherslubreytingar sem hann hefur kannski verið að taka jafnt og þétt með þeim á undirbúningstímabilinu, sem ég fékk bara á einu bretti. Hann kom því mjög vel frá sér. Hann er mjög skýr í því hvers hann ætlast til af mér líka. Hann er frábær þjálfari og á eftir að gera mjög gott starf.“

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arsenal flaug áfram – Chelsea og City áttu aldrei séns

Arsenal flaug áfram – Chelsea og City áttu aldrei séns
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Biðst afsökunar eftir að hafa reitt pabba ungstirnisins til reiði

Biðst afsökunar eftir að hafa reitt pabba ungstirnisins til reiði
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

FIFA hafnar beiðni Íran

FIFA hafnar beiðni Íran
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Rooney nefnir einn aðila sem hann vill ekki sjá að taki við United

Rooney nefnir einn aðila sem hann vill ekki sjá að taki við United
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir United að gefa Bruno það sem hann fer fram á – Hafa ekki efni á því að missa hann

Segir United að gefa Bruno það sem hann fer fram á – Hafa ekki efni á því að missa hann
433Sport
Í gær

Telur að vonarstjarna Arsenal missi af leikjum á næstunni – Þarf að mæta í skólann og taka próf

Telur að vonarstjarna Arsenal missi af leikjum á næstunni – Þarf að mæta í skólann og taka próf
433Sport
Í gær

Lekamál hjá Chelsea er aftur komið upp – Franskir miðlar með upplýsingar um liðið í kvöld

Lekamál hjá Chelsea er aftur komið upp – Franskir miðlar með upplýsingar um liðið í kvöld