

Reynsluboltinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir lenti í hremmingum á láni hjá ítalska liðinu Verona frá Breiðabliki 2017 og rifjar þetta upp í Dagmálum á mbl.is.
Berglind segist hafa litist vel á til að byrja með en það breyttist fljótt. „Eftir það fer allt til helvítis. Við fengum símhringingu seint um kvöld þar sem okkur var tjáð það að við værum að fara að flytja um íbúð og að það væri bíll á leiðinni að sækja okkur,“ sagði Berglind við mbl.is.
„Við förum og í íbúðinni voru tvö svefnherbergi og við vorum sex eða sjö sem bjuggum þarna. Ég og Arna (Sif Ásgrímsdóttir) deildum rúmi og einhverjar aðrar deildu hinu herberginu og svo var önnur stelpa á dýnu á ganginum og önnur stelpa á annarri dýnu á hinum ganginum,“ rifjar Berglind enn fremur upp og segir upplifunina hafa verið fáránlega.
Beglind átti þó síðar góðu gengi að fagna í atvinnumennsku og lék með liðum eins og AC Milan og Paris Saint-Germain.