fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Fréttir

„Við Íslendingar eigum að segja takk“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 10:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Kerecis á Ísafirði mun greiða hvorki meira né minna en 40 milljarða króna eingreiðslu í ríkissjóð í haust, en eingreiðslan kemur til vegna kaupa danska móðurfélagsins, Coloplast, á hugverkaréttindum úr dótturfélaginu. Frá þessu greinir Morgunblaðið í dag.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, segir að Íslendingar eigi að þakka fyrir þetta: „Við Íslendingar eigum að segja takk Kerecis, takk Guðmundur Fertram Sigurjónsson og hans öfluga starfsfólk og takk Vestfirðingar.“

Þessir 40 milljarðar séu ekki bara tala á blaði heldur áþreifanleg sönnun þess að verðmætasköpun skipti íslenskt samfélag máli, styrkir ríkissjóð, eykur svigrúm til innviðauppbyggingar og styður við velferðarkerfið. Þetta eigi ekki bara við um eitt fyrirtæki eða atvinnugrein. Það sama gildi um sjávarútveg, stóriðju, ferðaþjónustu og nýsköpunarfyrirtæki.

„Takið sérstaklega eftir því að stór hluti verðmætasköpunarinnar verður til á landsbyggðinni. Þar eru auðlindirnar, þar eru framleiðslufyrirtækin, þar eru hafnirnar, verksmiðjurnar, fiskvinnslan, orkuframleiðslan og sífellt fleiri hátæknifyrirtæki. Landsbyggðin er ekki jaðar hagkerfisins – hún er ein af undirstöðum þess.

Þegar við ræðum skatttekjur, opinber útgjöld og uppbyggingu samfélagsins verðum við að muna hvaðan verðmætin koma. Þau verða til í vinnu fólksins í landinu, í útflutningsgreinum sem standa undir gjaldeyristekjum og skapa raunverulegan styrk fyrir íslenskt samfélag.

Þess vegna eigum við einfaldlega að segja takk.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Arnór leggur til að Evrópuríki taki beinan þátt í átökunum í Úkraínu

Arnór leggur til að Evrópuríki taki beinan þátt í átökunum í Úkraínu
Fréttir
Í gær

Blóðug slagsmál í Keflavík út af epli – Kjálkabrotnaði á þremur stöðum

Blóðug slagsmál í Keflavík út af epli – Kjálkabrotnaði á þremur stöðum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þeir sem krjúpi fyrir Trump muni fá að finna fyrir því þegar Demókratar komast aftur til valda

Þeir sem krjúpi fyrir Trump muni fá að finna fyrir því þegar Demókratar komast aftur til valda
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn vonsviknir – Engir íshellar í íshellaferðum

Ferðamenn vonsviknir – Engir íshellar í íshellaferðum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Morgunblaðinu brást bogalistin í frétt um ákærða útlendinga – Hlutfallið mun lægra en haldið var fram

Morgunblaðinu brást bogalistin í frétt um ákærða útlendinga – Hlutfallið mun lægra en haldið var fram
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Róbert býður þingmönnum heim – „Æskilegt er að þátttakendur geti lesið sér til gagns á a.m.k. einu tungumáli“

Róbert býður þingmönnum heim – „Æskilegt er að þátttakendur geti lesið sér til gagns á a.m.k. einu tungumáli“