

KAPP hefur ráðið Sölva Sturluson Snæfeld fiskeldisfræðing til starfa í þeim tilgangi að styrkja enn frekar þjónustu félagsins og lausnir fyrir fiskeldi.
KAPP sérhæfir sig í þjónustu og lausnum fyrir fisk- og kjúklingavinnslu, fiskeldi og matvöruverslanir. Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri KAPP, segir að mikil aukning hafi orðið í þjónustu við fiskeldisfyrirtæki á síðasta ári og að stefna félagsins sé að tryggja framúrskarandi þjónustu fyrir fiskeldisgeirann, rétt eins og aðrar atvinnugreinar sem félagið þjónustar.
„Fiskeldi er mikilvægur hluti af þróun sjálfbærs matvælaiðnaðar. Þar er gríðarleg nýsköpun og spennandi þróun í gangi. Á síðasta ári höfum við aukið áherslu okkar á bæði hugbúnaðar- og vélbúnaðarlausnir fyrir fiskeldi og sú vegferð hefur skilað sér í ánægðum viðskiptavinum og aukinni eftirspurn. Með ráðningu Sölva, sem viðbót við öflugt teymi okkar, erum við að fylgja þeirri stefnu eftir og hyggjumst bjóða upp á enn breiðara úrval þjónustu og lausna á komandi mánuðum,“ segir Ólafur Karl.
Fyrir er Valþór Hermannsson, þróunarstjóri KAPP, sem leiðir þróunarstarf félagsins ásamt öflugum hópi sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu. ,,Með þessu teymi tel ég að við séum í fremstu röð þegar kemur að þjónustu við fiskeldi. Við hlökkum mikið til að taka næstu skref með viðskiptavinum okkar,“ segir Ólafur Karl.
Sölvi er vel kunnugur fiskeldisbransanum en hann hefur starfað í greininni undanfarna þrjá áratugi og býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu á sviðinu. Hann hefur komið að ræktun á laxi, regnbogasilungi, bleikju, risarækju, sæeyrum, þorski, sandhverfu og hrognkelsum. Sölvi starfaði síðustu átta ár sem framkvæmdastjóri Aqua.is/Eldvara ehf, sem er innflutnings- og þjónustufyrirtæki fyrir fiskeldi.
,,Það er afar mikilvægt að íslensk þjónustufyrirtæki séu til staðar til að styðja við ört vaxandi fiskeldi á landi. Þar eru vatnsgæði algjör lykilþáttur í því að starfsemin takist vel og þar mun okkar fókus liggja. Með aukinni áherslu á vöktun og stýringu á vatnsgæðum, ásamt öðrum lykilþáttum, liggur leiðin að árangri í þessari atvinnugrein sem mun margfaldast að stærð á næstu árum,“ segir Sölvi.
Ólafur Karl segir að það sé aðdáunarvert að fylgjast með þeim öflugu fiskeldisfyrirtækjum sem starfa hér á landi. ,,Slík verkefni krefjast mikillar þekkingar, elju og hugsjónar og uppbyggingin í greininni er mikil, líkt og almenningur þekkir, með fyrirtækjum á borð við Thor Landeldi, Laxey, Samherja, First Water, Sæbýli og fleiri.“