fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Fréttir

Ákærður fyrir nauðgun í bíl

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni. Hann er sakaður um að hafa í október árið 2021 beitt stúlku ólögmætri nauðung í bíl, fært hana úr buxum og haft samræði við hana og einnig önnur kynferðismök með því að láta hana setjast ofan á sig og nuddað sér upp við hana með samfarahreyfingum, svo kynfæri þeirra snertust.

Í annan stað er hann sakaður um kynferðislega áreitni með því að hafa á árunum 2021 og 2022, á heimili brotaþola, ítrekað snert kynfæri og brjóst brotaþola utan og innan klæða, án hennar samþykkis.

Brotaþoli gerir kröfu um miskabætur að fjárhæð fjórar milljónir króna.

Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en þinghald er lokað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Skuggaleg könnun í Eyjafirði – Fjölmargir Einingarfélagar hafa frestað læknisheimsóknum og lyfjakaupum

Skuggaleg könnun í Eyjafirði – Fjölmargir Einingarfélagar hafa frestað læknisheimsóknum og lyfjakaupum
Fréttir
Í gær

Vildi láta meta hvort barnsfaðirinn væri með vitræna getu til að véfengja rúmlega 50 ára faðernisviðurkenningu

Vildi láta meta hvort barnsfaðirinn væri með vitræna getu til að véfengja rúmlega 50 ára faðernisviðurkenningu