fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Bayern ætlar að funda með Guehi á fyrsta degi ársins

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 12. desember 2025 17:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íþróttastjóri Bayern München, Max Eberl, hyggst eiga viðræður við Marc Guéhi þann 1. janúar næstkomandi, samkvæmt Sky í Þýskalandi.

Það er sá dagur sem enski miðvörðurinn má formlega ræða við erlend félög, en þá verða sex mánuðir eftir af samningi hans við Crystal Palace.

Þrátt fyrir að framlenging samning Dayot Upamecano sé forgangsverkefni hjá Bayern vilja Þjóðverjarnir einnig tryggja sér Guéhi á frjálsri sölu næsta sumar.

Sky Sports News hefur lengi greint frá því að fleiri stórlið fylgist grannt með stöðu Guéhi, þar á meðal Liverpool, Barcelona og Real Madrid, sem öll hafa áhuga á að fá hann til liðs við sig árið 2026.

Liverpool er einnig áfram áhugasamt um Guéhi strax í janúar, eftir að tilraun þeirra til að ganga frá kaupunum á varnarmanninum á lokadegi félagaskiptagluggans síðasta sumar fór út um þúfur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

City horfir til Tottenham – Búast við afslætti ef Spurs fellur

City horfir til Tottenham – Búast við afslætti ef Spurs fellur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

U-beygja ekki í kortunum

U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stuðningsmenn Real Madrid fá frábærar fréttir fyrir leikinn í Manchester

Stuðningsmenn Real Madrid fá frábærar fréttir fyrir leikinn í Manchester
433Sport
Í gær

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað
433Sport
Í gær

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands