

Alan Shearer telur að Mohamed Salah muni aldrei spila aftur fyrir Liverpool eftir að hafa skaðað arfleifð sína hjá félaginu með ummælum sínum.
Salah vakti mikla athygli um síðustu helgi þegar hann gaf sprengjuviðtal eftir 3-3 jafntefli Liverpool gegn Leeds. Þar sagðist hann hafa verið „kastað undir rútuna“ af hálfu félagsins eftir að hafa verið settur á varamannabekkinn í þriðja leiknum í röð. Egyptinn ferðaðist heldur ekki með liðinu í 1-0 sigur gegn Inter Mílanó í miðri viku.
Salah hefur jafnframt haldið því fram að hann eigi ekkert samband við knattspyrnustjóra Liverpool, Arne Slot, en þeir funda um málið í dag.
Shearer telur ólíklegt að Salah muni biðjast afsökunar á ummælum sínum, sérstaklega í ljósi þess að hann heldur fljótlega á Afríkukeppni landsliða, skömmu áður en janúarglugginn opnar.
„Ég held að þetta velti alfarið á Mo sjálfum, hvort hann sé tilbúinn að bakka og viðurkenna að þetta hafi ekki verið rétt gert ef hann ætlar að spila aftur fyrir Liverpool,“ sagði Shearer í samtali við Betfair og bætti við að hann skildi tilfinningar Salah vel þar sem hann hefði sjálfur upplifað svipaðar aðstæður á ferli sínum.