fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Segir frá morðhótunum sem honum bárust eftir þessa ákvörðun

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 12. desember 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi enski landsliðsmaðurinn Wayne Rooney segir að hann hafi fengið líflátshótanir þegar hann yfirgaf uppeldisfélag sitt Everton og gekk til liðs við Manchester United árið 2004.

Rooney var aðeins 18 ára gamall þegar hann skrifaði undir samning við United í 27 milljóna punda viðskiptum, eftir að hafa hafnað metsamningi frá Everton. Félagaskiptin ollu miklum usla í Liverpool-borg og leiddu til harðra viðbragða frá hluta stuðningsmanna Everton.

„Ég fékk líflátshótanir,“ sagði Rooney í nýjasta þætti The Wayne Rooney Show á BBC Sport. „

Húsið hjá foreldrum mínum var spreyjað og rúður brotnar. Sama gerðist hjá kærustunni minni á þeim tíma, sem er eiginkona mín í dag.“

Rooney segir að þetta hafi reynt verulega á andlega. „Þarna þarftu að vera andlega sterkur og fólkið í kringum þig þarf að styðja þig. Það var erfitt að fara, sérstaklega þar sem ég fór til Manchester United. Liverpool og Manchester eiga í mikilli samkeppni og það gerði hlutina enn flóknari.“

Hann segir þó að hann hafi alltaf vitað hvað hann vildi. „Ég var alltaf með það hugarfar að mér væri sama. Ég vissi hvert ég vildi fara og hvernig ég ætlaði mér þangað. Þetta var fólk úr minni eigin borg og það var erfitt, en stundum þarftu að vera eigingjarn og taka stórar ákvarðanir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

U-beygja ekki í kortunum

U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Szoboszlai hjólar í sína menn fyrir frammistöðuna

Szoboszlai hjólar í sína menn fyrir frammistöðuna