fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Fréttir

Rósa kom Snorra til varnar og uppskar hörð viðbrögð

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 2. september 2025 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að frammistaða Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, í Kastljósi í gær hafi kveikt elda á samfélagsmiðlum. Snorri ræddi þar málefni hinsegin fólks við Þorbjörgu Þorvaldsdóttir, verkefnastýru Samtakanna ´78 og hefur uppskorið mikla gagnrýni fyrir framgöngu sína. Það eru þó síður en svo allir ósáttir við málflutning hans og ein þeirra sem tekur upp hanskann fyrir Snorra er Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

„Öll þau grófu ummæli sem hafa fallið um Snorra Másson eftir Kastljósumræðurnar í gær sýna að margir sem þykjast alfarið vera á móti hatursumræðu eru augljóslega bara á móti umræðu sem þeir sjálfir hata,“ skrifaði þingkonan á Facebook-síðu sinni og viðbrögðin létu ekki á sér standa.

„Líf fólks og tilfinningar sem er smættað niður í orð eins og „hugmyndafræði““

„Meinarðu þá einhverja Morfís umræðu um líf fólks og tilfinningar sem er smættað niður í orð eins og „hugmyndafræði“? Jú auðvitað verður það persónulegt og auðvitað verða viðbrögðin sterk. Hugsaðu aðeins málið, er líf þitt og þinna „hugmyndafræði“? Ef fjallað er um líf barnanna þinna í skólanum er þá verið að „innræta“ hinum „ákveðna hugmyndafræði“? Er það að þú viljir eiga hamingjusamt líf með þeim sem þú elskar „hugmyndafræði“? er það að leita hamingjunnar  hugmyndafræði“? Er það að konur vilji vinna utan heimilis og sitja á þingi „hugmyndafræði“? Kannski verða viðbrögðin einmitt svona sterk vegna þess að jú þetta er persónulegt en við þekkjum líka söguna og við munum hvernig fór af því að við stóðum ekki upp og vörðum okkur þegar á þurfti að halda. mæli með að menn kynni sér t.d. stöðu hinsegin fólks í Þýskalandi á þriðja áratug síðustu aldar og þær hörmungar sem yfir það voru leiddar á grundvelli ótta hinna „venjulegu“ við fólk sem það stimplaði sem óæðra. Í þeirra huga var það ekki fólk, það var „hugmyndafræði“, skrifaði Felix Bergsson.

Séra Jóna Hrönn Bolladóttir kvað sér einnig hljóðs og vísaði í færslu systur sinnar, séra Hildar Eir Bolladóttur:

„Það er ekki þöggun þegar bent er á að fólk megi sjálft ákvarða kyn sitt og kynhneigð án þess að þurfa að færa fyrir því rök svo ungir Miðflokksmenn um allan heim geti andmælt með Morfísræðu eins og sjálfsmynd og tilfinningar samkynhneigðra og transfólks sé aðeins útdregið umræðuefni í keppni um ræðumann kvöldsins. Þetta er því miður skortur á félagslegu innsæi og samlíðan sem ég vona að eldist fljótt af ungum mönnum sem eiga eftir að braga betur á lífinu.”

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Engar Robin klementínur í verslanir fyrir þessi jól

Engar Robin klementínur í verslanir fyrir þessi jól
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Vilhjálmur eftir frétt RÚV í gærkvöldi – „Tími til kominn að segja stopp. Heimilin á Íslandi hafa fengið nóg“

Vilhjálmur eftir frétt RÚV í gærkvöldi – „Tími til kominn að segja stopp. Heimilin á Íslandi hafa fengið nóg“
Fréttir
Í gær

Selfyssingurinn með smiðsaugað: Hver er Grímur Hergeirsson sem nú hefur verið settur ríkislögreglustjóri?

Selfyssingurinn með smiðsaugað: Hver er Grímur Hergeirsson sem nú hefur verið settur ríkislögreglustjóri?
Fréttir
Í gær

Ólafur bendir á önnur ámælisverð viðskipti á vakt Sigríðar Bjarkar – „Gamaldags vinavæðing, spilling af bestu sort“

Ólafur bendir á önnur ámælisverð viðskipti á vakt Sigríðar Bjarkar – „Gamaldags vinavæðing, spilling af bestu sort“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn 11 ára gamli Pétur er fundinn í Orlando – Móðursystir hans segir það búðarstarfsmanni að þakka

Hinn 11 ára gamli Pétur er fundinn í Orlando – Móðursystir hans segir það búðarstarfsmanni að þakka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Erla safnar undirskriftum til að seinka klukkunni

Erla safnar undirskriftum til að seinka klukkunni