fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Fókus

„Ég er bara með þetta uppáskrifað frá Kristrúnu Frosta. Vertu ekki að æsa þig yfir þessu“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 21. ágúst 2025 08:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Árnason, mannauðsstjóri Elju, hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum með stuttum sketsum sínum, þar sem hann leikur Uglu Tré, sem er ekkert óviðkomandi í stjórnsýslunni.

Ugla Tré og samstarfskona hennar Gógó, sem aldrei sést í mynd eða hljóði, eru í flestum sketsunum að vinna hjá einhverri ríkisstofnun. Um ádeilu á kerfið er að ræða og sýnir Árni hvernig það er oft ekki að virka. Grínið, sem er með sannleiksundirtón, hefur eins og áður segir slegið í gegn.

Í nýjasta myndbandinu finnur kona óboðinn gest í heita pottinum heima hjá sér. Þar er Ugla tré mætt í ákveðnum tilgangi.

„Hvað er í gangi hérna? Hver ert þú eiginlega?“ spyr konan óboðna gestinn.

Svarar hann til að hann heiti Ugla tré og sé nágranni.

„Ég sá að þú varst með heitan pott og ég tók hann svona eignarnámi bara tímabundið í kvöld. Ég þarf nefnilega að æfa mig. Ég er að taka að mér ýmis verkefni fyrir ríkisstjórnina og þessir norsku kafarar eru alltof dýrir.“

Spyr Ugla tré hvort konan hafi séð að stýrivextir voru ekki lækkaðir.

„Það er allt of mikill kostnaður hjá ríkinu þannig að það er verið að þjálfa mig upp. Þeir halda að sé að koma eldislax í Selá við Vopnafjörð, dýrustu laxá landsins. Og ég á að fljóta þar og veiða eldislax á morgun því breski auðkýfingurinn er brjálaður. Þannig að ég verð hérna eitthvað fram eftir kvöldi.“

Aðspurð hvort hún ætli að vera þarna í allt kvöld:

„Ég er bara með þetta uppáskrifað frá Kristrúnu Frosta. Vertu ekki að æsa þig yfir þessu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hjálmar Örn játaði 40 ára gamalt bernskubrek – „Síðasti þáttur fyrir sumarfrí kom á DV með rúðurnar og löggumálið“

Hjálmar Örn játaði 40 ára gamalt bernskubrek – „Síðasti þáttur fyrir sumarfrí kom á DV með rúðurnar og löggumálið“
Fókus
Í gær

Svona lítur barnastjarnan út 10 árum eftir að hann sló í gegn

Svona lítur barnastjarnan út 10 árum eftir að hann sló í gegn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Var rukkuð 44 þúsund krónur á hárgreiðslustofunni – „Verðlag á Íslandi er orðið eitthvað illa skakkt“

Var rukkuð 44 þúsund krónur á hárgreiðslustofunni – „Verðlag á Íslandi er orðið eitthvað illa skakkt“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Léttist um tæp 60 kíló í Biggest Loser en það átti eftir að kosta hann mikið

Léttist um tæp 60 kíló í Biggest Loser en það átti eftir að kosta hann mikið