fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
Fókus

Var eftirsótt fyrirsæta og gift Baywatch-stjörnu en býr í dag á götunni – Nýjar myndir vekja athygli

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 18. ágúst 2025 09:19

Myndir/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loni Willison var eftirsótt fyrirsæta fyrir rúmlega áratug og var gift Baywatch-stjörnunni Jeremy Jackson. Hún hefur verið heimilislaus um nokkurt skeið og er reglulega fjallað um harmsögu hennar í fjölmiðlum þegar nýjar myndir af henni fara í dreifingu.

Loni var mynduð ganga um Beverly Hills hverfið á sunnudaginn. Daily Mail greinir frá og birtir myndir. Það sem vakti athygli var að hún virtist vera með silfurlitað Rolex úr, en slík úr geta kostað margar milljónir.

Skjáskot/DailyMail.com

Endaði á götunni

Loni virtist lifa lúxuslífi fyrir ekki svo löngu síðan og það er því mörgum ráðgáta hvernig hún endaði á götunni í Los Angeles.

Fyrstu myndirnar af henni að gramsa í ruslatunnum fóru í dreifingu í apríl árið 2023 og vöktu mikla athygli. The Sun birti aðrar myndir nokkru síðar þar sem ástand hennar virtist hafa versnað. Það vantaði í hana nokkrar tennur og var hún rauð og bólgin á eyranu og í kringum augun.

Samkvæmt erlendum miðlum ánetjaðist Loni fíkniefnum eftir skilnaðinn við Jeremy, sem er einna best þekktur fyrir að hafa leikið Hoby Buchannon í Baywatch-þáttunum sálugu á árunum 1991 til 1999. Hoby var sonur Mitch Buchannon í þáttunum sem David Hasselhoff lék.

Harmsaga Loni

Loni, 42 ára, var vinsæl fitness-fyrirsæta á sínum tíma og prýddi reglulega forsíður tímarita.

Loni og Jeremy gengu í það heilaga árið 2012. Þau litu út fyrir að vera hið fullkomna stjörnupar en það var fjarri sannleikanum.

Jeremy var ungur þegar hann ánetjaðist fíkniefnum. Hann var handtekinn fyrir amfetamínframleiðslu þegar hann var nítján ára og hefur farið fimm sinnum í meðferð.

Hjónabandið var stormasamt og var lögreglan kölluð á heimili þeirra í ágúst 2014 eftir að Jeremy hafði lagt hendur á Loni.

Hún sagði hann hafa kyrkt hana og lamið hana. Hún var með tvö brotin rifbein, hálsmeiðsli og klórför á andliti og líkama eftir árásina en ákvað að kæra ekki. Hún sagði frá því nokkrum árum seinna að hún sæi eftir því að hafa ekki kært, en hún hafi verið mjög veik á þessum tíma. Loni og Jeremy skildu í kjölfarið en því miður lauk martröð hennar ekki þar.

Missti vinnuna og svo húsnæðið

Þegar þau skildu starfaði hún sem aðstoðarmaður lýtalæknis en skilnaðurinn var henni svo þungbær að hún gat ekki mætt til vinnu. „Það tók mig tvo mánuði að jafna mig. Ég þurfti að hætta í vinnunni, ég gat ekki stundað líkamsrækt eða tekið að mér fyrirsætuverkefni. Ég hitti ekki vini eða fór út úr húsi. Ég var á mjög slæmum stað,“ sagði hún árið 2015.

Hún fékk taugaáfall og glímdi við mikil andleg veikindi. Hún tæmdi bankareikningana sína og varð skuldug, árið 2016 missti hún íbúðina sína og þurfti að selja bílinn sinn. Hún endaði á götum Los Angeles og ánetjaðist kristölluðu metamfetamíni. Andlega heilsan tók enn frekari dýfu og hefur hún verið á götunni síðan þá.

Á meðan fyrrverandi eiginkona hans leitar að mat í ruslagámum hefur Jeremy einbeitt sér að líkamsrækt og kallar The Sun hann „fitnessgúrú.“ Aðspurður í gegnum árin hefur hann neitað að tjá sig um mál Loni og hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að veita henni ekki hjálparhönd eftir skilnað þeirra 2014.

Þrífur sig ekki viljandi

Fyrir nokkrum árum sagði hún í viðtali við The Sun að hún hafði ekki farið í sturtu í heilt ár, af mjög sorglegri ástæðu. Hún sagði að hún reynir að vera eins skítug og illa lyktandi og hún getur svo hún verði ekki fyrir kynferðisofbeldi.

„Ég klippti hárið mitt líka, til að líta öðruvísi út. En það hefur verið ráðist á mig, það er það sem gerist á götunni.“

Margir héldu í vonina að Loni myndi fá aðstoð og þak yfir höfuðið eftir að mál hennar rataði í fjölmiðla en því miður er það ekki raunin.

Skjáskot/YouTube
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Slúðra enn saman um sinn fyrrverandi Brad Pitt – „Hvernig er annað hægt?“

Slúðra enn saman um sinn fyrrverandi Brad Pitt – „Hvernig er annað hægt?“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Tilætlunarsöm dóttir gerir ráð fyrir að amman passi barnabörnin allar helgar – Á meðan er pabbinn stikkfrír

Tilætlunarsöm dóttir gerir ráð fyrir að amman passi barnabörnin allar helgar – Á meðan er pabbinn stikkfrír
Fókus
Fyrir 1 viku

Ein frægasta útvarpsstjarna heims sögð vera á útleið

Ein frægasta útvarpsstjarna heims sögð vera á útleið
Fókus
Fyrir 1 viku

Systir hans hvarf á skemmtiferðaskipi fyrir 27 árum – „Ég tel mig vita hvað kom fyrir hana“

Systir hans hvarf á skemmtiferðaskipi fyrir 27 árum – „Ég tel mig vita hvað kom fyrir hana“