Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál, harmar árás þriggja fanga á fangaverði á Litla Hrauni í gær. Ofbeldi sé aldrei réttlætanlegt og það verði að fordæma.
Greint var frá því á Vísi í dag að sérsveit og lögregla hafi verið kölluð til á Litla Hrauni þegar þrír fangar réðust á fangaverði. Voru þeir fluttir á slysadeild með sjúkrabíl en reyndust ekki alvarlega slasaðir. Ekki hefur komið fram hversu margir fangaverðir slösuðust eða hverjar orsakir þessarar árásar hafi verið.
Fangarnir sem um ræðir voru yfirbugaðir og mega búast við agaviðurlögum. Einnig er mögulegt að atvikið verði kært en árás á fangavörð er brot gegn valdstjórninni.
Í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum harmar Afstaða hið alvarlega atvik sem átti sér stað í gærkvöldi á Litla Hrauni.
„Hugur okkar er hjá þeim fangavörðum sem slösuðust, og óskum við þeim skjóts bata og vonum að áverkar þeirra reynist ekki alvarlegir,“ segir í tilkynningunni.
Að sögn samtakanna er ofbeldi aldrei réttlætanlegt og það verði að fordæma, hvar sem það eigi sér stað.
„Þeir sem bera ábyrgð á slíkri háttsemi verða að sjálfsögðu dregnir til ábyrgðar af viðeigandi yfirvöldum,“ segir í tilkynningunni. „Samhliða því er mikilvægt að þeir fái aðstoð og úrræði til að vinna með þær aðstæður og áföll sem kunna að liggja að baki hegðun þeirra, sérstaklega með það að markmiði að minnka líkur á frekara ofbeldi eftir afplánun.“
Þá er minnst á aðstæður fanga eftir atvik sem þetta. Að refsingar og hertari reglur sem settar séu bitni ekki aðeins á gerendunum sjálfum. En forsvarsmenn fangelsismálastofnunar hafa þegar sagt það við fjölmiðla í dag að taka þurfi öryggismálin til skoðunar eftir þetta atvik.
„Því miður er það oft raunin að í kjölfar svona atvika eru reglur hertar og skert svigrúm allra fanga, óháð því hvort þeir hafi átt þátt í atvikinu eða ekki. Það bitnar á fjölda einstaklinga sem reyna að halda frið og vinna að eigin bata innan veggja fangelsisins,“ segir í tilkynningu Afstöðu. „Skilaboð Afstöðu eru skýr: Ofbeldi á ekki að líðast í fangelsum landsins, hvorki gegn starfsmönnum né föngum!“