Þrjú ár eru liðin frá innrás Rússlands í Úkraínu en nú telja margir að Vladimir Pútín, Rússlandsforseti, sé kominn með nýtt skotmark – Aserbaídsjan. Úkraínska leyniþjónustan (HUR) hefur birt gögn sem virðast sýna meinta skipun frá rússneska hernum um að senda viðbótarhermenn til rússnesku herstöðvarinnar í Gyumri í Armeníu, skammt frá landamærinum við Aserbaídsjan.
Herstöðin, sú stærsta í Suður-Kákasus, hýsir allt að 5.000 hermenn og er búin meðal annars MiG-29 orrustuþotum og S-300 loftvarnarkerfum. Yfirvöld í bæði Armeníu og Rússlandi hafa neitað að slík aukning hafi átt sér stað en áðurnefnd skjöl virðast segja aðra sögu. Mirror greindi frá.
Samskipti Aserbaídsjans og Rússlands hafa hrakað verulega undanfarið. Ástæðan eru handtökur hóps aserbaídsjana í Jekaterínborg í Rússlandi vegna gamals morðmáls. Bræður í hópnum létustí haldi lögreglu. Yfirvöld í Baku hafa sakað Rússa um að hafa myrt mennina og hafa svarað fyrir hið meinta ódæði með því að aflýsa öllum rússneskum menningarviðburðum, ráðast inn á skrifstofur rússnesku ríkismiðilsins Sputnik og handtaka starfsmenn.
HUR telur að Moskva sé að reyna að „ógna öryggi á heimsvísu“ með því að kynda upp spennuna í Kákasus, svæði sem skiptir miklu fyrir orkuöryggi Evrópu. Aserbaídsjan er ríkt af olíu og gasi og selur hvoru tveggja til Vesturlanda.
Aðgerðirnar valda áhyggjum innan NATO. Mark Rutte, nýr framkvæmdastjóri bandalagsins, varaði á dögunum við því að Rússland og Kína gætu skipulagt samhæfða árás. Kína myndu gera áhlaup á Taívan og Rússar samtímis á NATO-ríki. Hann hvatti aðildarríkin til að efla hernaðarmátt sinn og vera undir það búin.