Sýklalyfjaónæmar bakteríur hafa greinst í fyrsta sinn í svínum hérlendis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun en þar kemur fram að meticillín ónæmir Staphylococcus aureus (MÓSA), af stofngerðinni CC398, hafi greinst í skimunarsýnum sem tekin voru við slátrun svína í síðustu viku. Bakertíurnar eru mjög útbreiddar í búfé í Evrópu og víðar.
MÓSA berst ekki með mat og því er ekki talin hætta af því að neyta svínaafurða. Bakterían veldur almennt ekki veikindum í dýrum en fólki sem starfar í mikilli nálægð við dýrin getur átt á hættu að verða fyrir smiti. Smitið veldur sjaldnast veikindum nema ef það berst í fólk með skert ónæmiskerfi eða veldur sárasýkingum. Erfitt getur verið að meðhöndla slíkar sýkingar með sýklalyfjum. Því er til að mynda afar mikilvægt að tryggja að MÓSA-smit berist ekki inn á heilbrigðisstofnanir.
„Síðustu vikur hefur Matvælastofnun skimað fyrir MÓSA við slátrun svína en þær skimanir eru hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis 2025-2029. Stroksýni eru tekin úr nefholi svína frá öllum svínabúum sem slátra eldisgrísum, samtals 15 búum. Nú þegar hefur verið skimað í svínum frá 13 búum og reyndust þrenn þeirra jákvæð í skimuninni. Þekkt er að MÓSA getur smitast á milli svína við flutning í sláturhús og því ekki hægt að útiloka krossmengun á milli svínanna, en þeim var öllum slátrað á svipuðum tíma í sama sláturhúsi.
Næstu skref miða að því að sannreyna hvort MÓSA sé að finna á þeim búum sem svínin komu frá, með sýnatökum á búunum sjálfum. Í framhaldi mun Matvælastofnun á næstu vikum fara í sýnatökur á öllum svínabúum landsins til að kanna frekari útbreiðslu, ásamt því að fara í viðeigandi aðgerðir til að hindra frekari smitdreifingu í þéttu samstarfi við hagaðila,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.