Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur sent erindi til refsiréttarnefndar þar sem hún kallar eftir því að nefndin athugi hvort tilefni sé til að endurskoða ákvæði almennra hegningarlaga hvað varðar líkamsárásir.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðs.
Ofbeldisbrotum hefur fjölgað á Íslandi síðustu ár og telur ráðherrann nauðsynlegt að bregðast við þeirri þróun. Einn liður í því sé að endurskoða almenn hegningarlög „með það fyrir augum að skerpa á skilum milli ákvæða hegningarlaga um líkamsárásir og þyngja refsimörk.“
Í erindi sínu til refsiréttarnefndar segir ráðherrann: „Ofbeldi er meinsemd í íslensku samfélagi. Við þurfum við að bregðast skýrt við auknum ofbeldisbrotum og að refsingar við slíkum brotum endurspegli alvarleika þeirra.“
Hún segir ennfremur:
„Við sjáum sambærilega hluti vera að gerast á Norðurlöndunum og þar hafa stjórnvöld brugðist við. Það eru skýr skilaboð gagnvart þessari þróun að þyngja refsiramma fyrir líkamsárásir. Þess vegna hef ég beðið refsiréttarnefnd um að skoða þetta vel og skila mér tillögu til að bregðast við þessari alvarlegu stöðu.“