Ferðaskrifstofan Tripical afhenti falsað boðsbréf frá frönskum skólastjóra til Hofstaðaskóla í Garðabæ í aðdraganda vinnuferðar kennara til Frakklands í júní. Bréfið var nauðsynlegt til að fá ferðastyrk frá Kennarasambandi Íslands en síðar kom í ljós að aldrei stóð til að heimsækja franska skólann og var heimsókninni aflýst þegar út var komið. Skólastjóri ytra staðfesti síðar að boðsbréfið væri falsað, þvert á móti hafði viðkomandi gefið afsvar varðandi mótttöku hópsins í ljósi þess að hann þótti of fjölmennur. Þetta kemur fram í frétt Vísis af málinu.
Ferðaskrifstofan Tripical annaðaðist skipulagningu ferðarinnar og þar á bæ segjast menn harma atvikið. Skuldinni er skellt á undirverktaka og þess heitið að sá muni ekki koma að frekari verkefnum. Þá hyggst fyrirtækið endurskoða verkferla sína.
Ennfremur kemur fram að kennararnir hafi þrátt fyrir allt fengið umræddan styrk og hafi því ekki orðið fyrir fjártjóni vegna málsins.
Svipað mál kom einnig upp hjá Stekkjaskóla á Selfossi sem einnig fór í slíka ferð sem skipulögð var af Tripical. Sú ferð var einnig illa skipulögð að sögn viðmælenda Vísis.
Ítarlega er fjallað um málið á vef Vísis.