fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum rannsakar mál þar sem faðir hennar er á meðal kærðra

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 28. júní 2025 09:00

Frá Vestmannaeyjum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum hefur verið falið að rannsaka mál sem varðar kæru á hendur nokkrum starfsmönnum bæjarins, þar á meðal starfsmönnum fasteignarumsjónar Vestmannaeyjarbæjar. Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum er Arndís Bára Ingimarsdóttir en meðal þeirra sem umrædd kæra tekur til er faðir hennar, sem er umsjónarmaður fasteigna í bænum. Arndís Bára er einnig aðstoðarsaksóknari í Vestmannaeyjum.

Spurningar hafa vaknað um hæfi Arndísar til rannsóknar málsins en áður en vikið er að því er rétt að reifa umrætt mál sem hefur verið til umfjöllunar hjá dv.is áður.

Sjá einnig: Andlát aldraðs Vestmannaeyings dregur dilk á eftir sér – Lögregla skoðaði síma vinar hans án dómsúrskurðar

Eigandi fyrirtækisins Houshang ehf. kærði Lögreglustjórann í Vestmannaeyjum og Vestmannaeyjabæ til héraðssaksóknara vegna framgöngu þessara aðila í kjölfar andláts vinar mannsins sem bjó í leiguhúsnæði í eigu bæjarsins.

Andlátið var í fyrstu óútskýrt og kallaði á rannsókn lögreglu sem meðal annars haldlagði tölvur og símtæki sem voru í íbúðinni. Eftir að hafa fjarlægt lík mannsins af vettvangi og haldlagt áðurnefnda hluti, afhenti lögregla leigusalanum íbúðina sem hinn látni hafði búið í, en leigusalinn var Vestmannaeyjarbær, og starfsmenn á hans vegum tæmdu íbúðina.

Eigandi Houshang staðhæfir að verðmæti í eigu fyrirtækisins hafi horfið við þessa tæmingu og ekki komið fram aftur, þar á meðal tvö handofin persnesk teppi. Ennfremur hafi sími hans sjálfs, sem hann hafði lánað hinum látna, verið á meðal haldlagðra muna lögreglu og lögregla hafi rannsakað innihald hans án þess að afla sér til þess dómsúrskurðar. Sá hluti málsins er lýtur að símanum er nú til rannsóknar hjá Héraðssaksóknara og fyrir skömmu komu menn frá embættinu til Vestmannaeyja vegna rannsóknarinnar.

Niðurstaða héraðssaksóknara, sem er staðfest af ríkissaksóknara, er sú að vísa frá kæru á hendur lögreglu varðandi horfna muni úr íbúðinni en vísa þeim hluta sem lýtur að kæru gegn starfsmönnum Vestmannaeyjabæjar til rannsóknar hjá Lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum. Eigandi Houshang ehf. telur að lögreglustjóri sé vanhæfur til að rannsaka málið vegna áðurnefndra fjölskyldutengsla og krefst þess að málið verði framsent til Héraðssaksóknara eða annars lögregluembættis.

Virðist á skjön við stjórnsýslulög

Stjórnsýslulög taka til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Í þriðju grein þeirra segir að starfsmaður eða nefndarmaður sé vanhæfur til meðferðar máls (2. liður) „Ef hann er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar.“

Í 7. málsgrein 8. greinar lögreglulaga segir: „Lögreglustjórar og aðrir þeir sem fara með lögregluvald mega ekki rannsaka brot ef þeir eru vanhæfir til þess samkvæmt stjórnsýslulögum, sbr. þó 5. mgr. 5. gr. Starfsmenn þess lögreglustjóra, sem vanhæfur er, geta þó rannsakað mál undir stjórn annars lögreglustjóra nema þeir séu sjálfir vanhæfir til að fara með málið samkvæmt stjórnsýslulögum.“

Í staðfestingu ríkissaksóknara á þeirri ákvörðun héraðssaksóknara að vísa málinu til Lögreglustjórans í Vestmannaeyjum er að finna eftirfarandi athugasemd:

„Að því er varðar meint vanhæfi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum vegna þess hluta málsins sem stendur til að framsenda embættinu til þóknanlegrar meðferðar þá gætir lögreglustjóri að eigin hæfi. Telji lögreglustjóri sig vanhæfan til að rannsaka mál getur hann borið slíkt álitaefni undir ríkissaksóknara og óskað þess að öðru lögregluembætti verði falið málið til meðferðar […]“

Fordæmi ríkislögreglustjóra

Mörg dæmi eru um að lögreglustjórar hafi vikið sæti við rannsókn mála vegna ættartengsla. Frægasta dæmið á seinni árum varðar ríkislögreglustjóra, Sigríði Björk Guðjónsdóttur. Hún sagði sig frá rannsókn hryðjuverkamálsins svokallaða vegna meintra tengsla föður hennar við sakborninga varðandi skotvopn í fórum þeirra.

DV sendi fyrirspurn til Arndísar Báru, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum, vegna málsins, á miðvikudag, og spurði með hvaða hætti hún gæti að hæfi sínu varðandi rannsókn málsins og hvort til greina komi að framsenda málið á annað lögregluembætti. Ekki bárust svör við fyrirspurninni fyrir birtingu þessarar fréttar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio
Fréttir
Í gær

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“