Það var búningadagur í skóla einum í Bretlandi í vikunni þar sem einn góður drengur mætti klæddur sem Sean Dyche.
Dyche er fyrrum stjóri Everton og Burnley en fólk átti að mæta klætt sem sinn uppáhalds aðili í íþróttum.
Drengurinn heldur með Everton og vildi því klæðast sem fyrrum stjóri liðsins, Dyche var rekinn frá Everton á síðustu leiktíð.
Hann setti á sig höfuðfat til að vera hárlaus að ofan líkt og Dyche er, hann lét svo mála á sig mottu og augnabrýr.
Hafði hann rauða litinn sem Dyche skartar á sér og vakti þetta mikla athygli í skólanum en flestir klæddu sig upp sem leikmenn en drengurinn ungi ákvað að vera Dyche.