Bandaríkin hafa undanfarið tekið á móti nokkrum hópum af flóttamönnum frá Suður-Afríku. Um er að ræða fólk úr hvítum minnihluta Suður-Afríku sem telur sig ofsótt af stjórnvöldum þar í landi sem meðal annars ætla að taka jarðir þeirra eignanámi og eins vegna meintrar ofbeldisöldu gegn hvítum bændum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur haldið því fram að þjóðarmorð sé stundað gegn hvítum í Suður-Afríku, nokkuð sem sérfræðingar hafa þó tekið fyrir þó vissulega gangi erfið ofbeldisalda yfir landsbyggðina en ofbeldið beinist þó gegn bæði hvítum og svörtum. Suður-Afríka er enda með eina hæstu glæpatíðni heimsins.
Nú greinir ein flóttamannafjölskylda frá því að hún sé hreinlega strönduð á hóteli í Montana í Bandaríkjunum. Þeim hafi verið lofað húsnæði, atvinnu og framfærslu þegar Bandaríkin buðu þeim hæli, en annað hafi þó beðið þeirra. Fjölskyldan eigi erfitt með að verða sér úti um nauðsynjar og fái svo enga hjálp í suðurafríska sendiráðinu.
Fjölskyldan opnaði sig um raunir sínar á TikTok. Þar segist hún hafa leitað til Bandaríkjanna í þeirri trú að stjórnvöld tækju vel á móti þeim. Stjórnvöld myndu aðstoða þau við að fá þak yfir höfuðið, atvinnu og skaffa þeim heilbrigðisþjónustu.
Yfirvöld í Suður-Afríku hafa skýrt komið því á framfæri að flóttamenn geti ekki leitað til sendiráða eftir aðstoð, enda sé eðli flóttans þannig að fólk sé viljandi að losna undan stjórnvöldum í heimalandinu. „Þú getur ekki leitast eftir stöðu flóttamanns bara til að skella þér svo aftur heim til að fá þér braai [suður-afrískan grillmat] og svo skellt þér aftur út. Það gengur gegn tilgangi þess að fá vernd eða hæli í tilteknu landi,“ sagði utanríkisráðuneyti Suður-Afríku í yfirlýsingu til The South African. Flóttamennirnir ættu því að leita til bandarísku útlendingastofnunarinnar eftir aðstoð.
Miðillinn The Citizen veltir fram þeirri spurningu hvort að Donald Trump og ríkisstjórn hans séu að átta sig á því að þau hafi orðið fyrir barðinu á falsfréttum, mögulega að undirlagi auðkýfingsins Elon Musk sem er suður-afrískur innflytjandi. Einn ráðgjafi Trump, Mark Burns, skellti sér nýlega til Suður-Afríku til að rannsaka fullyrðingar um þjóðarmorð gegn hvítum. Hann sagði síðan við fjölmiðla að hann ætlaði sér að tilkynna ríkisstjórn sinni að hann hafi ekkert fundið sem benti til þess að þjóðarmorð sé að eiga sér stað. Sérfræðingur í alþjóðasamskiptum, Anthoni van Niewkerk, segir í samtali við The Citizen að Hvíta húsið sé líklega fyrst núna að fá réttar upplýsingar um stöðuna í Suður-Afríku og mögulega muni Trump nú endurskoða afstöðu sína. Hann spáir því að forsetinn muni afturkalla boð sitt til hvítra Suður-Afríkumanna um hæli. Þetta muni á sama tíma skapa óvissu fyrir þá flóttamenn sem þegar eru komnir til Bandaríkjanna, sem eru minnst 49 einstaklingar til þessa.
Langafabarn fyrrum forseta Suður-Afríku, Nelson Mandela, hefur kallað eftir því að stjórnvöld Suður-Afríku kæri þessa meintu flóttamenn fyrir framkomu sína. Mayibuye Melisizwe Mandela segir að þessir flóttamenn séu að ljúga því að alþjóðasamfélaginu að þjóðarmorð sé að eiga sér stað, allt til að grafa undan stöðugleika Suður-Afríku og til að rústa orðspori landsins.