Hagræðingadeildin DOGE átti að spara bandaríska ríkinu heilu billjónirnar. Meðal annars með því að auka skilvirkni hjá hinu opinbera svo hægt væri að fækka starfsmönnum og svo með því að finna og uppræta kerfissvik. DOGE-deildin varð hratt mjög umdeild enda voru topparnir í deildinni margir rétt skriðnir inn í fullorðinsárin og með eindæmum reynslulausir. Eins var deildin gagnrýnd fyrir að nálgast opinberan rekstur eins og einkarekið fyrirtæki og taka ekkert tillit til þess að ríkið sinni nauðsynlegri þjónustu við skattgreiðendur, einkum til þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu.
Nú hefur einn fyrrum starfsmaður deildarinnar stigið fram og lýst reynslu sinni. Sahil Lavingia er stofnandi tæknifyrirtækisins Gumroad og gekk til liðs við DOGE í mars. Lavingia átti að hjálpa DOGE við að uppfæra kerfi sem sjá um þjónustu við uppgjafahermenn. Lavingia er forritari og segist ekki pæla mikið í stjórnmálum. Hann langaði hreinlega að bæta notendaupplifun í opinberri þjónustu. Forritarinn hafði vissulega tekið eftir neikvæðni í garð DOGE en vonaðist til þess að geta sjálfur haft jákvæð áhrif. Eftir aðeins 55 daga í starfi voru þó aðgangsheimildir hans afturkallaðar. Þá hafði hann unnið sér það til saka að ræða við bloggara og taka fram að hann hefði í starfi sínu séð fátt sem benti til þess að kerfi hins opinbera væru misnotuð eða merki um óráðsíu í fjármálum.
Lavingia segir nú í samtali við NPR að þetta hafi allt komið honum á óvart.
„Það kom mér persónulega á óvart hversu skilvirkt hið opinbera er. Ekki að það megi ekki auka skilvirknina svo sem með því að hætta með pappír og hætta að nota faxtæki – en þetta eru ekki dæmi um svik, sóun eða misnotkun.“
Stofnandi DOGE, auðkýfingurinn Elon Musk, lagði mikla áherslu á gagnsæi í störfum deildarinnar. Lavingia segir að þess vegna hafi komið honum á óvart að vera rekinn fyrir að tala opinberlega um vinnu sína, og það án nokkurs fyrirvara, og það hljóti að teljast töluverð kaldhæðni.