fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. júní 2025 09:30

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ný rík­is­stjórn hef­ur tekið þetta mál föst­um tök­um og tryggt sum­ar­opn­un þess­ara gríðarlega mikilvægu úrræða,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Þar greinir Sigmar frá því að nýjar fjárheimildir munu renna til SÁÁ, Krýsuvíkur, Hlaðgerðarkots og fleiri úrræða sem verður til þess að ekki þarf að loka þeim yfir sumarið.

Í grein sinni bendir Sigmar á að eftir kosningarnar 2021 hafi þáverandi ríkisstjórn verið með það á forgangslistanum að fjölga ráðherrastólum með tilheyrandi kostnaði.

Enn í fersku minni

„Það hefði því ekki átt að koma nein­um á óvart þegar rík­is­stjórn Viðreisn­ar, Sam­fylk­ing­ar og Flokks fólks­ins lét það verða sitt fyrsta verk fyrr á þessu ári að fækka ráðuneyt­um aft­ur og spara með því 350 millj­ón­ir króna á ári,“ segir hann og bætir við að vissulega sé þetta ekki há upphæð í stóra samhenginu en skipti þó máli.

„Þegar við för­um bet­ur með al­manna­fé skap­ast traust og svig­rúm til að styrkja kerfið þar sem þörf­in er brýn­ust. Við get­um til dæm­is lagt mál­in þannig upp að með þess­ari ein­földu aðgerð hafi ný rík­is­stjórn tryggt að bráðnauðsyn­leg meðferðarúr­ræði verði opin í sum­ar, ólíkt því sem gerst hef­ur und­an­far­in ár,“ segir Sigmar og heldur áfram:

„Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni. Ein­stak­ling­ar sem stigu erfið skref og leituðu sér hjálp­ar fengu skila­boð um að hringja aft­ur „eft­ir frí“. Heilu fjöl­skyld­urn­ar fóru inn í sum­arið í óvissu og það sem er al­var­leg­ast, dauðsföll má rekja til þessa sumarlokana. Það er óend­an­lega sorg­legt og seg­ir allt um hversu mikið er í húfi.“

Fíknin tekur sér ekki frí

Sigmar segir að ný ríkisstjórn hafi nú tryggt sumaropnun þessara mikilvægu úrræða.

„Fíkn tek­ur sér nefni­lega ekki frí; kvíði og þung­lyndi fylgja hvorki daga­tali né veður­spá. Heil­brigðis­kerfi sem lok­ar vegna rangra ákv­arðana send­ir kol­röng skila­boð. Slík skila­boð mun­um við ekki senda,“ segir Sigmar en sem fyrr segir munu nýjar fjárheimildir renna til SÁÁ, Krýsuvíkur, Hlaðgerðarkots og fleiri úrræða.

„Göngu­deild Land­spít­al­ans fær aukið bol­magn; Lauf­eyj­art­eymið, Ylja og Frú Ragn­heiður geta tekið á móti fleir­um. Biðlist­ar stytt­ast og órof­in þjón­usta létt­ir á bráðaþjón­ust­unni, dreg­ur úr kostnaði vegna langvar­andi veik­inda og veit­ir fólki von þegar mest á reyn­ir. Þetta er skyn­sam­leg nýt­ing fjár­muna. Að færa fé frá efsta lagi stjórn­kerf­is­ins yfir í úrræði sem bjarga manns­líf­um. Þannig sýn­um við að orð og verk hald­ast í hend­ur,“ segir Sigmar sem boðar svo frekari aðgerðir.

„Næstu skref verða að styrkja for­varn­ir, efla eft­ir­fylgni og tryggja að fólk falli ekki á milli kerfa. Fjár­fest­ing í heil­brigðismál­um er ekki út­gjalda­vandi held­ur arðbær ákvörðun um mannauð þjóðar­inn­ar. Þegar fólk horf­ir til okk­ar stjórn­mála­mann­anna þarf það að fá á til­finn­ing­una að dyrn­ar standi opn­ar, líka í júlí.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“
Fréttir
Í gær

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð