fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Pressan

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)

Pressan
Laugardaginn 14. júní 2025 15:00

Mynd/Andrea Piacquadio, Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsta stefnumótið er eins og að taka þátt í pílukasti með bundið fyrir augun. Þú veist nokkurn veginn hvar skotmarkið er en það eru miklar líkur á að þú hittir skotmarkið ekki og að enginn gleymi því. Það má að vissu leyti heimfæra þetta upp á karlmenn því þeir vilja oft ganga í augun á hinu kyninu en gera sömu mistökin hvað eftir annað.

Hér ætlun við því að veita ykkur góð ráð strákar, svo þið gerið ekki þessi klassísku mistök á fyrsta stefnumótinu.

Að tala of mikið um sjálfan þig – Þú heldur kannski að þú sért mjög spennandi en þú hljómar einna helst eins og löng stikla úr kvikmynd um sjálfan þig. Spyrðu spurninga, hlustaðu, kinkaðu kolli, segðu „það er frábært“. Þetta er ekki „TED Talk“ strákar, þetta er samtal.

Að panta fyrir hana – Þú hefur örugglega séð í kvikmyndum að karlinn pantar fyrir konuna. En þetta virkar ekki í raunveruleikanum nema auðvitað að hún biðji þig um að gera þetta. Hún er fullfær um að ákveða sjálf hvað hún vill borða. Konur fara ekki á stefnumót til að láta karlmann ákveða mataræði sitt.

Að nefna fyrrum kærustur – Það skiptir engu máli hversu „venjulegt“ þú reynir að gera þetta, það er stranglega bannað að nefna gamlar kærustur á einn eða annan hátt. Sérstaklega ef þú segir eitthvað á borð við „mín fyrrverandi var vön að segja þetta“. Svona ummæli senda þig beint í tilfinningalega ruslatunnu.

Að vera of mikill herramaður – Það er góður stíll að opna dyrnar fyrir hana og taka við jakkanum hennar og hengja hann upp. En ef þú gengur of langt og verður blanda af stífri kvikmynd frá því á sjötta áratugnum og riddara frá miðöldum, þá virkar þetta meira eins og einhverskonar sýning en hrein og bein kurteisi. Gættu því að jafnvæginu góði.

Að kíkja á símann – Hún tekur eftir þessu. Alltaf. Meira að segja ef þú ætlaðir bara að kíkja á hvað klukkan er. Ef þú ert háður því að fá tilkynningar í símann, þá skaltu setja hann á hljóðlausa stillingu og setja hann í vasann. Annars er hún á stefnumóti með þér og símanum þínum og því nennir hún ekki.

Að monta þig að nauðsynjalausu – Ef þú átt Teslu, ert með kreditkort frá vinnunni og úr sem kostar sex stafa tölu, þá skaltu bara halda þeim upplýsingum fyrir þig, nema auðvitað að þú sért spurður. Ef þú nefnir þetta án þess að vera spurður um þetta, þá virkar það eins og þú sért að reyna að bæta upp fyrir eitthvað annað og við vitum hvað það þýðir . . .

Að vera of óákveðinn – „Við getum gert það sem þú vilt,“ hljómar fallega en gefur til kynna að þér sé alveg sama. Stingdu upp á einhverjum stað. Taktu frumkvæðið. Vertu opinn fyrir breytingum en sýndu að þú sért með einhverja áætlun. Það er miklu kynþokkafyllra en að vera algjörlega passífur.

Að verða of fullur – Einn eða tveir bjórar, það er í lagi. En ef þú byrjar að tala of hátt og skiptir yfir í „ég ætla bara að segja svolítið mikilvægt um lífið gírinn“, þá ertu farinn yfir strikið. Ölvun er sjaldan ávísun á sjarma.

Að ljúga (meira að segja bara pínulítið) – Lygin er stuttfætt og lifir ekki lengi ef stefnumótið þróast yfir í eitthvað meira. Ekki segja „ég fer í ræktina þrisvar í viku“ eða „ég er að stofna mitt eigið fyrirtæki“ ef það er ekki rétt. Hreinskilni skilar mesta langtímaávinningnum.

Að gleyma að segja takk – Ekki bara „takk fyrir í kvöld“ heldur einnig fyrir að hún vildi fara á stefnumót með þér, gaf sér tíma til þess og eyddi kvöldinu með þér. Einföld kurteisi af þessu tagi sker sig úr og hún tekur eftir þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því
Pressan
Í gær

Er þögn góð fyrir þig?

Er þögn góð fyrir þig?
Pressan
Í gær

Sat líka í sæti 11A og lifði af flugslys þar sem yfir 100 fórust

Sat líka í sæti 11A og lifði af flugslys þar sem yfir 100 fórust
Pressan
Í gær

Dóttir Ásu og Rex skipti um skoðun áður en heimildarþættirnir fóru í loftið – Þessu trúir hún í dag í ljósi staðreynda málsins

Dóttir Ásu og Rex skipti um skoðun áður en heimildarþættirnir fóru í loftið – Þessu trúir hún í dag í ljósi staðreynda málsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Afi hennar og amma tóku hana að sér og ólu upp – Svona launaði hún þeim góðmennskuna

Afi hennar og amma tóku hana að sér og ólu upp – Svona launaði hún þeim góðmennskuna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vinsælasti meinti morðinginn í dag deilir 27 hlutum sem hann er þakklátur fyrir

Vinsælasti meinti morðinginn í dag deilir 27 hlutum sem hann er þakklátur fyrir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Henni var rænt og haldið fanginni í trékassa í 7 ár – Hvað varð um „Stúlkuna í kassanum“?

Henni var rænt og haldið fanginni í trékassa í 7 ár – Hvað varð um „Stúlkuna í kassanum“?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi starfsmaður DOGE opnar sig um reynslu sína og hvers vegna hann var rekinn

Fyrrverandi starfsmaður DOGE opnar sig um reynslu sína og hvers vegna hann var rekinn