Enginn blundur – Slepptu því að fá þér blund. Hitinn getur gert mann þreyttan yfir daginn því líkaminn notar meiri orku við hitastjórnun sína. Ef nætursvefninn þinn er ekki eins góður og þú vildir, reyndu þá að standast freistinguna um að leggja þig að degi til. Þegar það er heitt í veðri, getur syfja verið verðmæt og því er best að geyma að nota hana fram að háttatíma.
Rútínur – Haltu fast í rútínurnar þínar. Hitinn gæti valdið því að þú freistist til að breyta rútínunum þínum, en reyndu að standast þessa freistingu. Það getur truflað svefninn. Reyndu að halda þig við venjulega háttatímann þinn og hinar venjulega kvöldrútínur.
Ekki gleyma grundvallaratriðunum – Gerðu allt sem í þínu valdi stendur til að halda svefnherberginu eins svölu og hægt er. Það getur gert gæfumuninn að draga gardínurnar fyrir. Að loka gluggunum á sólarhlið hússins, kemur í veg fyrir að heitt loft komist inn. Opnaðu síðan alla glugga fyrir háttatíma til að ná upp gegnumtrekki.
Þunn lök – Notaðu þunn lök og eins lítið af sængurfatnaði og hægt er en hafðu eitthvað við höndina sem þú getur breitt yfir þig ef þörf krefur. Þunn bómullarlök geta dregið svita í sig. Óháð því hversu heitt er í svefnherberginu, mun líkamshitinn lækka yfir nóttina og þess vegna vöknum við oft og finnst okkur vera kalt.
Kældu sokkana – Þú getur sett sokkana þína í ísskápinn áður en þú ferð í þá. Ef þú kælir fæturna, þá lækkar heildarhitastig líkamans.
Drekktu nóg – Gættu þess að drekka nóg vatn yfir daginn en forðastu að drekka mikið rétt fyrir háttatímann. Þú munt líklega vakna þyrst(ur) en þú vilt það frekar en að þurfa að fara á klósettið um miðja nótt.
Slepptu gosdrykkjum – Gosdrykkir innihalda oft koffín en það örvar miðtaugakerfið og gerir okkur meira vakandi. Reyndu líka að takmarka áfengisneyslu. Margir detta í þá gildru að drekka meira áfengi þegar heitt er í veðri. Alkóhól getur gert að verkum að fólk á auðveldara með að sofna en það gerir einnig yfirleitt að verkum að maður vaknar snemma og svefngæðin eru lítil.