fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
433Sport

United mun gera tilboð í Mbuemo á allra næstu dögum – Hefur ekkert með framtíð Bruno að gera

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 3. júní 2025 09:00

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United mun leggja fram formlegt tilboð í Bryan Mbuemo sóknarmann Brentford í þessari viku.

Mbuemo hefur látið önnur félög vita að hans fyrsi kostur sé að fara til United.

Arsenal, Tottenham og Newcastle höfðu sýnt landsliðsmanni Kamerún áhuga en hann vill fara til United.

Brentford vill fá um 50 milljónir punda fyrir Mubemo en möguleg koma hans hefur ekkert með framtíð Bruno Fernandes að gera.

Bruno er orðaður við lið í Sádí Arabíu en óvíst er hvort hann fari.

Búist er við að United reyni að ganga frá kaupum á Mbuemo á allra næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Liverpool segir takk en nei takk við Barcelona

Liverpool segir takk en nei takk við Barcelona
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Skotarnir horfa á Ísland sem auðvelda bráð til að koma sér á flug fyrir haustið

Skotarnir horfa á Ísland sem auðvelda bráð til að koma sér á flug fyrir haustið
433Sport
Í gær

Búinn að taka ákvörðun varðandi næsta skref

Búinn að taka ákvörðun varðandi næsta skref
433Sport
Í gær

Jón Gnarr búinn að velja sér fótboltafélag til að halda með á Íslandi

Jón Gnarr búinn að velja sér fótboltafélag til að halda með á Íslandi
433Sport
Í gær

Delap staðfestur hjá Chelsea

Delap staðfestur hjá Chelsea
433Sport
Í gær

Ekki spilað í marga mánuði en vill samt fá himinhá laun

Ekki spilað í marga mánuði en vill samt fá himinhá laun