Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fyrrum fréttamaðurinn Pege Hegseth, er einn umdeildasti embættismaður Bandaríkjanna og það eftir aðeins um fjóra mánuði í embætti. Skemmst er að minnast Signal-málsins þar sem ritstjóra fréttamiðilsins The Atlantic var fyrir mistök boðið í hóp á spjallforritinu Signað þar sem háttsettir embættismenn ræddu fyrirhugaða árás á Húta í Jemen. Í framhaldinu kom á daginn að Pete Hegseth hafði verið að deila trúnaðarupplýsingum með aðstandendum sínum í gegnum Signal án þess að þessir aðilar hefðu öryggisheimildir til að taka við slíkum upplýsingum.
Hegseth brást ókvæða við þessum fréttum, en hann er sannfærður um að þessar fréttir sem og fleiri byggi á upplýsingum sem hafi verið lekið til fjölmiðla úr ráðuneyti hans. Hann fyrirskipaði því einkalögmanni sínum, Tim Parlatore, að fara fyrir innri rannsókn til að finna út hver eða hverjir væru að leka upplýsingum í fjölmiðla. Rannsóknin leiddi til þess að þremur háttsettum starfsmönnum Pentagon var sagt upp störfum, en þeir segjast allir vera hafðir fyrir rangri sök. Hegseth hafi notað rannsóknina til að freista þess að uppræta innanhússátök með því að losa sig við starfsmenn sem hann taldi sér ekki hliðholla.
The Guardian greinir frá því að embætti forseta Bandaríkjanna viti hreinlega ekki hvað snýr upp og hvað snýr niður í þessu máli. Parlatore hafi rætt við ráðgjafa Trump og gefið þeim skýrslu um rannsóknina og haldið því fram að ólöglegum hlerunum hafi verið beitt til að upplýsa málið. Þetta þótti ráðgjöfunum grafalvarlegt. Ólöglegar hleranir brjóta gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna en það þykir mun alvarlegra brot heldur en einhver leki. Ráðgjafarnir ákváðu að kafa dýpra og þá fengu þeir þær upplýsingar að engum ólöglegum hlerunum hafi verið beitt og það sem meira var – þá kannaðist Parlatore ekki við að hafa nokkurn tímann haldið slíku fram. Nú munu ráðgjafarnir ekki vita hverju þeir eiga að trúa. Var hlerunum beitt? Voru reknu starfsmennirnir sekir eða saklausir eða er þetta allt liður í vinnustaðapólitík varnarmálaráðuneytisins?
Einn þeirra brottreknu, Dan Caldwell, mætti í hlaðvarpið til fréttamannsins Tucker Carlson þar sem hann fordæmdi uppsagnirnar. Hegseth hafi notað meintan leka sem yfirskyn til að losa sig við starfsmenn sem voru ekki tilbúnir að kyssa vöndinn.