

Arnar Gunnlaugsson hefur opinberað hóp sinn fyrir komandi verkefni en íslenska liðið leikur gegn Kanada og Haítí í mars og fara báðir leikir fram í Kanada. Um er að ræða æfingaleiki.
Jóhann Berg Guðmundsson er án félags og er sökum þess ekki með. Jóhann hefur verið í síðustu hópum en rifti samningi sínum í Abú Dabí í febrúar.
„Við áttum gott samtal, í gær eða fyrradag. Við töldum það best að hann yrði ekki í þessum hóp, hann skildi það mjög vel,“ sagði Arnar um stöðuna á Jóhanni á blaðamannafundi í dag.
Hann sagði að Jóhann væri að íhuga framtíð sína en hann er mikið orðaður við uppeldisfélag sitt, Breiðablik.
„Það eru tímamót hjá honum, hvað gera skal. Ég tjáði honum það að hann gæti hjálpað okkur í haust, maður hefur ekki áhrif á það sem hann og fjölskylda hans gera. Það væri innspýting fyrir Bestu deildina, kljást við Gylfa (Þór Sigurðsson) í fyrsta leik í Bestu deildinni,“ sagði Arnar en Breiðablik heimsækir þá Víking.
„Ef hann er all-inn og er í standi, þá tel ég mjög líklegt að þeir geti hjálpað okkur mjög mikið í haust. Hvort sem það eru 1 mínúta eða 90 mínútur. Vonandi fer hann all inn ef hann heldur áfram.“