fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
433Sport

Auknar líkur á því að United ráði Carrick til framtíðar í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. mars 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick hefur styrkt stöðu sína sem helsti kandídatinn til að taka við Manchester United til frambúðar eftir frábæran árangur sem bráðabirgðastjóri. Manchester Evening News segir frá þessu

Carrick hefur náð góðum úrslitum með liðið undanfarið og vakið athygli stjórnenda félagsins, sem eru nú að íhuga næstu skref varðandi þjálfaramál.

Samkvæmt heimildum standa nú aðeins tveir aðrir sterkir kostir eftir í baráttunni um starfið, þeir Luis Enrique, knattspyrnustjóri Paris Saint-Germain, og Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfari Þýskalands.

Frammistaða Carrick hefur sett hann í lykilstöðu og gæti hann fengið starfið ef liðið heldur áfram á sömu braut. Manchester United vill þó vanda valið og mun taka endanlega ákvörðun þegar nær dregur sumri.

Næstu vikur gætu því skipt sköpum fyrir framtíð Carrick hjá félaginu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Segja Liverpool að gleyma þeirri hugmynd að þessi maður fylli skarð Salah

Segja Liverpool að gleyma þeirri hugmynd að þessi maður fylli skarð Salah
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hneyksli hjá Real Madrid í kringum meiðsli Mbappe

Hneyksli hjá Real Madrid í kringum meiðsli Mbappe
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Íslendingar á ferð og flugi um Evrópu næstu daga

Íslendingar á ferð og flugi um Evrópu næstu daga
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Strákarnir okkar léttir, ljúfir og kátir í kuldanum – Sjáðu frá æfingu liðsins

Strákarnir okkar léttir, ljúfir og kátir í kuldanum – Sjáðu frá æfingu liðsins