fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
433Sport

Vill helst fara til Real Madrid í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 24. mars 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enzo Fernandez, miðjumaður Chelsea, er sagður opinn fyrir því að ganga til liðs við Real Madrid í sumar.

Samkvæmt Talskport myndi það teljast draumaskipti fyrir argentínska landsliðsmanninn að færa sig til spænska stórliðsins. Real Madrid hefur þó enn ekki lagt fram formlegt tilboð, en félagið er sagt vinna að því að setja saman lista yfir möguleg skotmörk á miðjunni.

Þrátt fyrir áhuga Fernandez er staða hans hjá Chelsea skýr. Félagið lítur á hann sem lykilmann til framtíðar og hefur engan áhuga á að selja hann. Hann er samningsbundinn til ársins 2032 og því í sterkri stöðu innan félagsins.

Heimildir herma að Chelsea myndi aðeins íhuga að selja ef til kæmi algjörlega ómótstæðilegt tilboð, en jafnvel þá er vilji félagsins að halda honum áfram.

Fernandez kom til Chelsea fyrir metfé og hefur verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins síðan þá. Framtíð hans gæti þó ráðist á næstu mánuðum ef Real Madrid ákveður að stíga fastar til jarðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Tottenham að melta það hvort reka eigi Tudor á næstu dögum

Tottenham að melta það hvort reka eigi Tudor á næstu dögum
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vill fara frítt til Barcelona í sumar

Vill fara frítt til Barcelona í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Brjálaður út í dragdrottningu: Segir öryggisverði hennar hafa öskrað á barn og eiginkonu í morgunmat – „Ég hata ekki börn“

Brjálaður út í dragdrottningu: Segir öryggisverði hennar hafa öskrað á barn og eiginkonu í morgunmat – „Ég hata ekki börn“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tveir leikmenn Brentford blóðugir um miðja nótt – Hjálpuðu manni sem varð fyrir árás

Tveir leikmenn Brentford blóðugir um miðja nótt – Hjálpuðu manni sem varð fyrir árás
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Viktor Nói í FH

Viktor Nói í FH
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gerðist í fyrsta sinn í meira en ár hjá Arsenal

Gerðist í fyrsta sinn í meira en ár hjá Arsenal